Margt jákvætt í hvítbók en annað þarf að skýra betur
Margar jákvæðar áherslur er að finna í Hvítbók um umbætur í menntun sem menntamálaráðuneytið gaf út fyrr í vikunni. Þetta er mat Kennarasambands Íslands en um leið er bent á að sum atriði í Hvítbókinni þurfi að skýra betur.
Kennarasamband Íslands sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem er að finna fyrstu viðbrögð við efni Hvítbókarinnar.
Fréttatilkynningin er svohljóðandi:
Fréttatilkynning Kennarasambands Íslands 20. júní 2014 um hvítbók menntamálaráðuneytis
Í Hvítbók menntamálaráðuneytisins um stefnumótun í íslenskum menntamálum er sjónum beint að þeim stoðum menntakerfisins sem helst þurfi að styrkja. Bent er á leiðir sem séu til þess fallnar að veita nemendum þá menntun sem menntalögin 2008 og aðalnámskrár 2011 boða, og áherslur og aðgerðir eru rökstuddar með vísan í alþjóðlegan samanburð og rannsóknir í menntamálum. Kennarasamband Íslands telur að margar jákvæðar áherslur séu þarna að finna þótt sumt þurfi að skýra betur.
Færni í læsi er undirstaða þess að nemendur nái tökum á námi sínu og lykilforsenda virkrar samfélagsþátttöku og er grunnurinn lagður strax í leikskóla. Brotthvarf úr námi er samfélagslegt vandamál sem mikilvægt er að ráða bót á með samstarfi margra aðila. Lengi hefur verið talað um að efla þurfi starfsmenntun og binda kennarasamtökin vonir við að markmiðum fylgi efndir.
Innleiðing menntastefnunnar frá 2008 hefur að stórum hluta legið niðri vegna efnahagskreppunnar. Kennarasamtökin eru sammála um nauðsyn þess að nú þurfi að veita skýrari leiðsögn um framkvæmd og áherslur. Skólar þurfa fjármagn í samræmi við það meginmarkmið að öllum nemendum bjóðist innihaldsríkt og fjölbreytt nám við hæfi, list-, verk- og bóklegar greinar og skapandi kennsluhættir. Kennarastéttin þarf einnig stuðning við þá sérfræðivinnu sem innleiðingin krefst. Ekki verður lengur vikist undan því að verja meiri fjármunum til stuðnings við nemendur.
Varast ber að meta gæði menntunar með einföldum mælikvörðum, því þar hafa margir þættir áhrif: Kennaramenntun, aðstæður kennarastéttarinnar til starfsþróunar og samfélagsleg staða hennar, námsaðstæður nemenda, starfsskilyrði skóla og framlög til menntamála.
Kennarasamtökin munu að sjálfsögðu taka þátt í samstarfi við að útfæra þau markmið hvítbókar sem eru til hagsbóta fyrir menntun nemenda og samfélagið í heild. Það er í samræmi við það hlutverk kennarastéttarinnar á öllum tímum að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda í menntamálum og framkvæmd skólastarfs.