Málþingið Börn hafa 100 mál – Skapandi leikskólastarf

Faghópur um skapandi leikskólastarf hélt glæsilegt málþing í samstarfi við leikskólann Stekkjarás mánudaginn 14. nóvember s.l. Aðsókn að málþinginu var afar góð, en yfir 100 þátttakendur mættu og nutu samvista og fróðleiks.
Faghópur um skapandi leikskólastarf hélt glæsilegt málþing í samstarfi við leikskólann Stekkjarás mánudaginn 14. nóvember s.l. Aðsókn að málþinginu var afar góð, en yfir 100 þátttakendur mættu og nutu samvista og fróðleiks.
Yfirskrift málþingsins vísaði í hugmyndafræði skapandi skólastarfs sem kennt er við Reggio Emilia á Ítalíu, en "Börn hafa hundrað mál" er setning sem Loris Malaguzzi viðhafði og sagði að börn hefðu hundrað mál og frá þeim tekin nítíu og níu. Hann rökstuddi það meðal annars með að börn hafi meðfædda hæfileika til að lesa umhverfi sitt með öllum skilningavitum og afla sér fróðleiks og þekkingar sem er margfalt flóknari en almennt hefur verið talið.
Haldnar voru tvær málstofur og þær svo endurteknar eftir gott kaffihlé þar sem þátttakendum bauðst að skoða leikskólann. Þessi endurtekning var að ósk félagsmanna, en það kom fram í endurmati síðustu ráðstefnu að fólk vildi ekki missa af neinu erindi.
Í málstofu 1. voru þær Kristín Hildur Ólafsdóttir Verkefnastjóri SFS með erindi um mikilvægi skapandi starfs í leikskólum. Hún minnti á að umhverfi og efniviður þarf að örva og styðja við sköpunarkraft barna.
Sigurbjörg Lára Kristinsdóttir leikskólakennari í Stekkjarási sagði frá mjög áhugaverði niðurstöðu rannsóknar sinnar um mikilvægi þess að á börn sé hlustað. Ef starfsfólk leikskóla hlustar ekki á börnin þá er ekki verið að fylgja eftir hugmyndum þeirra.
Í málstofu 2. var lögð áhersla á það sem er að gerast í listasmiðjum leikskólanna Lyngheima og Sæborgar. Anna Guðmundsdóttir leikskólakennari, listasmiðjustjóri og Kristín Helgadóttir leikskólastjóri í Lyngheimum sögðu frá því að listasmiðjan væri hjarta leikskólans. Þær voru með margar ljósmyndir og myndbönd sem sögðu meira en mörg orð um frábært gæðastarf í leikskólanum.
Anna Gréta Guðmundsdóttir listasmiðjustjóri Sæborg sagði frá listasmiðjunni í Sæborg og lagði áherslu á mikilvægi þess að gefa börnum nægjanlegt rými og tíma til listsköpunar. Í leikskólum sem kenna sig við Reggio Emilia eru þrír kennarar - barnið sjálft, kennarar þess og svo umhverfið. Hér má sjá myndir frá málþinginu.
