Málþingið „Bara leikur“ í beinni útsendingu

Málþingi FL um frjálsan leik verður streymt í fyrramálið.
Bein útsending verður frá málþingi FL um frjálsan leik sem fram fer að morgni þriðjudagsins 27. október. Yfirskrift málþingsins er Bara leikur. Málþinginu verður streymt úr Stórholti, sal Kennarasambandsins í Borgartúni.
Hlekkur á streymið: https://bit.ly/2J9lR8v
Hægt er að senda inn spurningar á meðan á þinginu stendur; þær skal senda á netfangið fl@ki.is.
Dagskráin er svohljóðandi
8:30-8:45 Setning – Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands
8:45-9:15 „Læra börn með þátttöku í leik? Hvernig vitum við það?”
– Dr. Kristín Karlsdóttir, dósent í menntunarfræði ungra barna
við Menntavísindasvið HÍ.
9:15-9:45 „Leikur er ekkert „bara”. Sýn barna á gildi leiks”
– Dr. Sara Margrét Ólafsdóttir, lektor í leikskólafræði við Menntavísindasvið HÍ.
9:45-10:15 „PlayEd” – Myndband um leik
– Samtökin “International Play Iceland”
10:15-10:30 Kaffi
10:30-11:00 „Taktu til og farðu að pissa”
– Dr. Guðrún Alda Harðardóttir, Helga Hreiðarsdóttir leikskólakennari, Hörður Svavarsson leikskólastjóri og leikskólinn Aðalþing
11:00-11:30 „Upplifun og vellíðan - útinám og ævintýraferðir”
– Sveinlaug Sigurðardóttir, leikskólakennari
11:30-12:00 „Að tengja leik og listir“
– Kristín Dýrfjörð, dósent í leikskólafræði við Háskólann á Akureyri.
12:00-12:15 Málþingi slitið – Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara
Ath. eitthvað af efninu verður aðgengilegt í viku á eftir en ekki allt. Fólk er því hvatt til að fylgjast með í beinu streymi.