Málþing um samskipti kynjanna

Fréttir|13. apríl 2015

Málþing um eitt og annað sem tengist samskiptum kynjanna er efni Vikupósts FF sem Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, framhaldsskólakennari í Flensborgarskólanum skrifar að þessu sinni. Hrafnkell segir kynjafræðina hafa verið í mótun í framhaldsskólunum og kennarar hafa verið duglegir að hafa samráð og miðla hugmyndum sín á milli. Afrakstur þess samstarfs sé málþingið fram undan. 

„Kynjafræði er ört vaxandi grein innan félagsvísinda og af þeim sökum er sjálfsagt að framhaldsskólar kynni þá grein fyrir nemendum. Jafnrétti er einn af grunnþáttum aðalnámskrár og hefur verið kveðið á um það í lögum landsins frá 1976 að skylt sé að veita nemendum jafnréttisfræðslu," skrifar Hrafnkell Tumi meðal annars í grein sinni. Hann segir að í kynjafræði læri nemendur mannhelgi og mörk í samskiptum; fá verkefni séu verðugri i skólastarfi. 

Málþingið verður haldið miðvikudaginn 15. apríl næstkomandi og hægt er að kynna sér efni þess og dagskrá hér.