Málþing um samfélagsmiðla á Alþjóðadegi kennara

Fréttir|15. september 2015

Í tilefni af Alþjóðadegi kennara efnir Kennarasambandið í samstarfi við Heimili og skóla til málþings, mánudaginn 5. október, þar sem fjallað verður um samfélagsmiðla í kennslu. Hvaða gagn má hafa af samfélagsmiðlum og hvað ber að varast við notkun þeirra? 

Málshefjendur verða Sólveig Jakobsdóttir, dósent á Menntavísindasviði HÍ, Yngvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari og ráðgjafi í upplýsingatækni, og Ægir Karl Ægisson, formaður Siðarráðs KÍ. 

Að loknum erindum verður efnt til pallborðsumræðna þar sem frummælendurnir þrír taka sæti ásamt Þresti Jónassyni, fulltrúa foreldra, og Önnu Mínervu Kristinsdóttur, fulltrúa nemenda. 

Félagsmenn eru hvattir til að sækja málþingið og taka þátt í umræðum. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu á vef Netsamfélagsins. 

Málþingið verður haldið á Grand Hóteli Reykjavík og stendur frá klukkan 16 til 18. 

Fylgist með viðburðasíðunni um Alþjóðadag kennara á Facebook.