Málþing um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna

Mennta- og barnamálaráðuneytið blæs til málþings um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna fyrir börn og ungmenni.
Málþingið, sem fer fram föstudaginn 16. febrúar, klukkan 13-17 á Hótel Reyjavík Natura, er ætlað öllum áhugasömum um gæði námsgagna og aðilum sem koma að útgáfu þeirra. Það er öllum opið en skráningar er þörf.
Markmiðið er tryggja aukið aðgengi að vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig með hagsmuni barna og ungmenna að leiðarljósi.
Með það fyrir augum verður farið yfir núverandi fyrirkomulag á útgáfu námsgagna og ræddar leiðir til úrbóta. Horft verður til greiningarvinnu sem hefur átt sér stað bæði hérlendis og í nágrannalöndum. Að pallborðsumræðum loknum tekur við hópavinna í málstofum til að leita leiða til úrbóta fyrir hvert skólastig. Þátttakendur geta valið úr þremur málstofum eftir skólastigum (leik-, grunn- eða framhaldsskóla).
Málþingið er liður í heildarendurskoðun mennta- og barnamálaráðuneytisins á fyrirkomulagi námsgagnaútgáfu í samræmi við aðgerð níu í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um vönduð náms- og kennslugögn fyrir allt menntakerfið. Niðurstöður úr málstofunum verða nýttar við fyrirhugaða endurskoðun.