Málstofuröð um rannsóknir í framhaldsskólum

Fréttir|3. febrúar 2017

Haldnar verða níu málstofur á vegum námsbrautar í kennslu í framhaldsskólum og Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs. Málstofunar verða haldnar á þriðjudögum kl. 16.20-17.05 í stofu K208 í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Rannsóknir í framhaldsskólum verða til umræðu í umfangsmikilli málstofuröð sem hefur göngu sína 7. febrúar og lýkur 4. apríl næstkomandi. Haldnar verða níu málstofur á vegum námsbrautar í kennslu í framhaldsskólum og Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs. Málstofunar verða haldnar á þriðjudögum kl. 16.20-17.05 í stofu K208 í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. 

Dagskráin er sem hér segir: 

7. febrúar

Nám í tvískiptu kerfi iðnmenntunar: Hvað lærist í skóla og hvað á vinnustað?

Elsa Eiríksdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.


14. febrúar

Áhrif og raddir nemenda: Reynsla framhaldsskólanema af tækifærum til að hafa áhrif.

Valgerður S. Bjarnadóttir, framhaldsskólakennari og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.


21. febrúar

Why choose vocational education and training (VET)?

Anna Karin Sandal, assistant professor, Western Norway University of Applied Sciences (HVL), Campus Sogndal.


28. febrúar

Aðgengi fullorðinna að námi á framhaldsskólastigi.

Elín Sif Welding Hákonardóttir, náms- og starfsráðgjafi, Sif Einarsdóttir, prófessor við námsbraut í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, og Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.


7. mars

Á jaðri jaðarsins í framhaldsskóla fyrir alla.

Helga Þórey Júlíudóttir, sérkennari við Tækniskólann.


14. mars

Relevant and meaningful vocational education.

Åse N. Bruvik and Grete Haaland, professor, at the Oslo and Akershus University College. 


21. mars

Leiðsagnarnám og endurgjöf: Upplifun kennara og nemenda í framhaldsskólum.

Ívar Rafn Jónsson kennari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.


28. mars

Ungir karlar og kynlíf. Upplifun ungra karla af kynlífsmenningu framhaldsskólanema.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra jafnréttismála hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, og Þórður Kristinsson, kennari við Kvennaskólann í Reykjavík.
 

4. apríl

Kennsluaðferðir framhaldsskólakennara í 130 kennslustundum og leiðir þeirra til að gera kennsluna áhugaverða.

Ingvar Sigurgeirsson, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Elsa Eiríksdóttir, kennarar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.