Málstofur á Námstefnu SÍ

Skólamálanefnd SÍ býður upp á fjórar spennandi málstofur fimmtudaginn 6. október á Hilton Nordica Reykjavík. Málstofurnar eru haldnar í tengslum við Námstefnu félagsins sem fer fram daganna 7. og 8. október í ár.
Fyrirlesarar eru Dr. Jane Kise, sérfræðingur í leiðtogaþjálfun, og Sean T. Slade, forstöðumaður hjá BTS Spark North America, sem hvort um sig verða með tvær málstofur.
Hér gefst einstakt tækifæri til að hlýða á tvo virta fræðimenn sem eru meðal þeirra fremstu á sínu sviði. Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um fyrirlesaranna og efni málstofanna.
Nauðsynlegt er að skrá sig á málstofurnar, sem kosta 17.000 krónur hver. Skráning á námstefnu er eingöngu heimil félagsmönnum Skólastjórafélags Íslands. Hér er hægt að skrá sig á málstofur.
Þátttaka er takmörkuð og því um að gera að skrá sig sem fyrst. Þegar hámarksfjölda er náð á hverja málstofu lokast fyrir skráningu á viðburðinn.
Athugið að skráningarfrestur á Námsstefnu SÍ, árshátíð og málstofur rennur út 16. september. Hér er hægt að skrá sig á Námsstefnu SÍ og árshátíð.
Dagskrá málstofa
Málstofa 1: Leading Inclusive, Doable Differentiation með Dr. Jane Kise. 09.00-12.00
Málstofa 2: A Framework for Stopping Resistance Before it Starts með Dr. Jane Kise. 13.00-16.00
Málstofa 3: Personal Resilience með Sean T. Slate. 09.00-12.00
Málstofa 4: Leading Change með Sean T. Slate. 13.00-16.00