Máli foreldra gegn KÍ og FL vísað frá dómi

Fréttir|31. janúar 2025

Það er í verkahring Félagsdóms að skera úr um lögmæti verkfalla. Á þessum forsendum, meðal annars, hefur Héraðsdómur Reykjavíkur vísað máli foreldra gegn KÍ og FL frá dómi. Þá voru KÍ og FL sýknuð að kröfu um bótaskyldu.

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag kröfu um lögmæti verkfalls í fjórum leikskólum, frá dómi og sýknaði Kennarasamband Íslands (KÍ) og Félag leikskólakennara (FL) af kröfu um bótaskyldu.

Forsaga málsins er sú að forráðamenn nokkurra barna stofnuðu Málsóknarfélag barna í leikskólunum Holti í Reykjanesbæ, Drafnarsteini í Reykjavík, Ársölum á Sauðárkróki og Leikskóla Seltjarnarness, fyrir hönd barna sinna.

Félagið stefndi Kennarasambandi Íslands og Félagi leikskólakennara og krafðist þess annars vegar að verkfall sem KÍ, fyrir hönd FL, boðaði væri dæmt ólögmætt og hins vegar að félögin, KÍ og FL, yrðu dæmd bótaskyld.

Niðurstaða héraðsdóms var sú að kröfu um ólögmæti verkfalls skyldi vísað frá dómi og félögin voru sýknuð af kröfu um bótaskyldu.

Að sögn Gísla Guðna Hall, lögmanns Kennarasambands Íslands í málinu, var kröfunni um ólögmæti verkfalls vísað frá á þeim forsendum að það væri Félagsdóms að skera úr um lögmæti verkfalla, ekki héraðsdóms.

Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, sagði niðurstöðuna ánægjulega í viðtali við RÚV. „Núna erum við búin að fara í gegnum tvö dómsmál: í Félagsdómi og þetta í héraðsdómi sem staðfestir í einu og öllu að við höfum farið að lögum,“ sagði Haraldur í fyrrnefndu viðtali.