Málefni tónlistar og tónlistarnáms rædd á fundi með ráðherra

Fréttir|6. október 2022

Formenn FT og KÍ áttu fund með menningar- og viðskiptaráðherra þar sem rætt var um mikilvægi aðkomu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum þegar kemur að mótun fyrstu tónlistarstefnu þjóðarinnar og samningu frumvarps til laga um tónlist.

Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hittu Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra á Alþjóðadegi kennara, 5. október. Efni fundarins var að ræða tónlistarmenntun og málefni tónlistar í tengslum við fyrstu tónlistarstefnu í þjóðarinnar og frumvarp til laga um tónlist sem verið er að vinna að í ráðuneytinu. 

Ráðherra fór yfir vinnuna sem farið hefur fram nú þegar og umræða var um mikilvægi aðkomu FT að þeirri vinnu enda gegnir félagið lykilhlutverki þegar kemur að tónlistarmenntun á Íslandi.

Á nýafstaðinni tveggja daga ráðstefnu á vegum FT „Tónlist er fyrir alla“ sást vel sá frumkraftur sem í stéttinni býr út um allt land og er það þýðingarmikið fyrir tónlistina að rödd félagsins sé sterk á þeim sögulegu tímum þar sem tónlist er mörkuð heildarstefna og heildarrammi.