Málefni kennara á Norðurlöndum rædd á Selfossi

Fréttir|2. júní 2016

Stjórn Norrænu kennarasamtakanna (NLS) situr nú á fundi á Hótel Selfossi og ræðir m.a. sameiginleg málefni norrænna kennara. Í stjórninni sitja fulltrúar stéttarfélaga kennara í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Íslandi, Færeyjum og Grænlandi, alls um fjörutíu manns.

Stjórnin fundar tvisvar á ári og færast fundirnir milli norðurlandanna. Þar sem Kennarasamband Íslands er í forystu samtakanna í ár er fundurinn haldinn hér á landi.

Stjórnarfundir NLS eru formlegir þar sem ákveðin mál eru ávallt á dagskrá, en stjórnin setur sér að vinna með ákveðnar áherslur á hverju starfsári og helgast það af því sem efst er á baugi í alþjóðasamfélagi kennara og samtaka þeirra. Til viðbótar þessu eru á fundinum nú kynnt og rædd þrjú málefni; í fyrsta lagi starfendarannsóknir, í öðru lagi ungir kennarar og nýliðun í stéttinni og í þriðja lagi verður þar kynnt Menntamiðja.