Málefnavinna og stjórnarskipti á aðalfundi FG

Níu nefndir tóku til starfa síðdegis í gær og ræddu brýn málefni og stefnumótun félagsins til framtíðar. Umræða um tillögur nefndanna fer fram í dag. Meðal þess sem er rætt á fundinum má nefna kjara- og réttindamál, skólamál, réttindamá, fræðslu og kynningar, sjóði og innra starf félagsins svo fátt eitt sé nefnt. Fjallað verður um stefnumótun, ályktanir og samþykktar tillögur aðalfundarins eftir helgina.
Um eitt hundrað grunnskólakennarar sitja nú aðalfund Félags grunnskólakennara (FG) í Borgarnesi. Fundurinn hófst um hádegisbil í gær þegar Ólafur Loftsson, fráfarandi formaður FG, flutti setningarræðu.
Níu nefndir tóku til starfa síðdegis í gær og ræddu brýn málefni og stefnumótun félagsins til framtíðar. Umræða um tillögur nefndanna fer fram í dag. Meðal þess sem er rætt á fundinum má nefna kjara- og réttindamál, skólamál, réttindamá, fræðslu og kynningar, sjóði og innra starf félagsins svo fátt eitt sé nefnt. Fjallað verður um stefnumótun, ályktanir og samþykktar tillögur aðalfundarins eftir helgina.
Aðalfundinum lýkur síðdegis í dag en þá verða stjórnarskipti í félaginu. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir tekur við formennsku í FG. Ný stjórn FG tekur einnig við en hana skipa auk Þorgerðar þau Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Hjördís Albertsdóttir, Hreiðar Oddsson, Jens Guðjón Einarsson og Sigurður Freyr Sigurðarson. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár eða til ársins 2022.
Ólafur Loftsson, fráfarandi formaður FG, og Guðbjörg Ragnarsdóttir, fráfarandi varaformaður, voru kvödd í hátíðarkvöldverði í gærkvöld og þeim þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Þá var öllum þeim fjölmörgu sem gegnt hafa stjórnarstörfum og öðrum trúnaðarstörfum í þágu FG síðustu fjögur þakkað innilega fyrir vel unnin störf. Að síðustu var Sesselja G. Sigurðardóttir, sem hefur starfað hefur á félagasviði FG/FL í Kennarahúsinu um langt árabil en lætur af störfum í dag, kvödd með virktum og henni færð gjöf.
Félag grunnskólakennara er fjölmennast aðildarfélaga KÍ, með um 4.600 félagsmenn.