Mál í mótun

Sýningin er sérstaklega ætluð nemendum úr efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla.
Í Veröld – Húsi Vigdísar verður á næstunni opnuð sýningin Mál í mótun. Á sýningunni fá gestir tækifæri til að skyggnast inn í heim tungumálanna og kynnast hinum ýmsu tungumálum sem töluð eru í heiminum í dag. Gefinn er þverskurður af tungumálum heimsins allt frá gríðarstórum heimsmálum sem mörghundruð milljónir tala niður í fámenn tungumál í útrýmingarhættu.
- Við fræðumst um hinar fjölmörgu hliðar tungumála með hjálp gagnvirkra margmiðlunarverka og sýndarveruleika og heyrum raddir á þeim ólíku málum sem töluð eru á Íslandi í dag.
- Við sjáum hvernig tungumál hafa þróast meðfram sögu mannsins á jörðinni í meira en 300.000 ár og hvernig þau hafa dreifst og flakkað heimshorna á milli.
- Loks kynnumst við lífshlaupi tungumála sem, líkt og önnur lifandi fyrirbæri, verða til, þróast og taka breytingum áður en þau loks deyja út. Við veltum fyrir okkur hvernig hægt er að stuðla að varðveislu tungumála svo að þau geti dafnað um ókomna tíð.
Sýningin er sérstaklega ætluð nemendum úr efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Kennsluvefur hefur verið settur upp fyrir sýningarnar þar sem kennarar geta sótt verkefni sem hægt er að vinna með nemendum fyrir og eftir heimsókn, og annað ítarefni í tengslum við tungumál. Frá og með áramótum gefst kennurum kostur á því að bóka heimsóknir með leiðsögn fyrir nemendahópa. Sjá nánari upplýsingar hér.