Magnús Þór og Jónína mætt til starfa

Fréttir|4. apríl 2022

Magnús Þór Jónsson hefur tekið formlega við formennsku í KÍ og Jónína Hauksdóttir hefur tekið formlega við embætti varaformanns KÍ.

Formanns- og varaformannsskipti eru um garð gengin hjá Kennarasambandinu. Nýr formaður, Magnús Þór Jónsson, og Jónína Hauksdóttir, nýr varaformaður, tóku formlega til starfa um mánaðamótin. 

Fráfarandi formaður og varaformaður eru Ragnar Þór Pétursson og Anna María Gunnarsdóttir en hvorugt þeirra gaf kost á sér til endurkjörs. 

Hefð hefur verið fyrir því að formannsskipti fari fram á þingi Kennarasambandsins sem fram fer fjórða hvert ár. Þing hefur jafnan verið haldið í mars eða apríl. Stjórn KÍ ákvað að fresta þingi til hausts vegna aðstæðna í þjóðfélaginu.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kom í húsakynni KÍ í morgun. Ráðherra fundaði með forystu KÍ og færði nýkjörnum formanni og varaformanni blómvönd. Þá þakkaði ráðherra Ragnari Þór og Önnu Maríu fyrir samstarfið á síðustu fjórum árum.