Magnús Þór Jónsson nýr formaður KÍ

Nýkjörinn formaður tekur við á VIII þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.
Niðurstöður í formannskjöri KÍ liggja fyrir. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla, bar sigur úr býtum.
Fjögur voru í framboði og féllu atkvæði þannig:
- Anna María Gunnarsdóttir hlaut 2.171 atkvæði eða 32,51%
- Hanna Björg Vilhjálmsdóttir hlaut 1.083 atkvæði eða 16,22%
- Heimir Eyvindsson hlaut 552 atkvæði eða 8,27%
- Magnús Þór Jónsson hlaut 2.778 atkvæði eða 41,61%
- Auðir seðlar 93 eða 1,39%
Á kjörskrá voru 11.068 og greiddu 6.677 atkvæði, eða 60,32%.
Atkvæðagreiðslan var rafræn; hófst klukkan 12:00 mánudaginn 2. nóvember og lauk klukkan 14.00 í dag.
Magnús Þór Jónsson tekur við formennsku af Ragnari Þór Péturssyni á VIII þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári. Ragnar Þór lætur þá formlega af embætti en hann hefur gegnt formennsku í KÍ frá árinu 2018. Forveri hans var Þórður Árni Hjaltested sem sat á formannsstóli 2011 til 2018. Eiríkur Jónsson var fyrsti formaður KÍ, gegndi formennsku frá 2000 til 2011.