Magnús Þór Jónsson býður sig fram til formanns KÍ
Fréttir|3. október 2021

Magnús Þór tilkynnti framboðsnefnd KÍ þetta í dag.
Magnús Þór Jónsson býður sig fram til formanns Kennarasambands Íslands og tilkynnti hann þetta bréfleiðis til framboðsnefndar KÍ í dag, sunnudag.
Magnús Þór er skólastjóri í Seljaskóla og grunnskólakennari.
Formannskjör fer fram í byrjun nóvember en formannsskipti fara fram á þingi KÍ í apríl á næsta ári.