Magnús sækist eftir endurkjöri til formanns KÍ

Fréttir|5. desember 2025

Magnús Þór Jónsson hefur gegnt embætti formanns frá 2022.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sækist eftir endurkjöri á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030.

Hann tilkynnti framboðsnefnd KÍ um áformin með formlegu bréfi í dag. Magnús hafði áður greint frá því að hann gæfi kost á sér til endurkjörs á Skólamálaþingi KÍ í nóvember.

Magnús Þór er núverandi formaður Kennarasambandsins og hefur gegnt því embætti frá árinu 2022.