Mælaborð um farsæld barna sett í loftið

Fréttir|29. apríl 2024

Mennta- og barnamálaráðherra opnaði í morgun nýjan upplýsingavef þar sem hægt er skoða margs konar tölfræðigögn sem varpa ljósi á farsæld barna.

Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, setti nýjan vef í loftið í morgun. Um er að ræða vef sem ber yfirskriftina Mælaborð farsældar barna og er hugsað sem verkfæri til að styðja við innleiðiingu farsældarlaganna og um leið innleiða gagnadrifna stefnunmótum hvað hag barna varðar. 

„Markmið mælaborðsins er að draga fram heildstæða mynd af farsæld barna hér á landi, á grundvelli þeirra fjölþættu tölfræði­gagna sem til staðar eru, hjá ríki og sveitar­félögum. Með mælaborðinu er horft til þess að safna tölfræðigögnum um ólík málefni og hópa barna og tryggja að stjórnvöld hafi yfirlit yfir þætti er varða farsæld barna hér á landi, yfirlit sem byggir á nýlegum og aðgengi­legum gögnum. Er þar ekki síst horft til þess að draga fram stöðu viðkvæmra hópa barna og tryggja að stjórnvöld hafi aðgang að upp­lýsingum er varpa ljósi á stöðu og þarfir þessara hópa. Markmið mælaborðsins er enn fremur að tryggja að þau tölfræðigögn sem til eru séu nýtt með markvissum hætti við laga­setningu, stefnumótun og mat á áhrifum aðgerða opinberra aðila, ríkis og sveitar­félaga,“ segir á vefnum Mælaborð farsældar barna. 

Mælaborð um farsæld barna hefur verið í þróun frá því að hafist var handa við að móta löggjöf um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna árið 2019. Að þróun og mótun mælaborðsins hefur komið fjöldi hagaðila, innlendir og erlendir sérfræðingar, ásamt því að haft var samráð við almenning, börn og ungmenni hér á landi. Einnig var verkefnið unnið í þverfaglegu samráði innan Stjórnarráðsins og við félagasamtök og stofnanir sem koma að málefnum barna.

Mælaborðið skilgreinir fimm grunnstoðir farsældar, sem mynda víddir mælaborðsins. Hver og ein vídd samanstendur af tveimur til fjórum undirvíddum er varpa betur ljósi á einstaka þætti hennar. Samkvæmt mælaborðinu eru grunnþættir farsældar heilsa og vellíðan, öryggi og vernd, lífsgæði og félagsleg staða, þátttaka og félagsleg tengsl og menntun. Hver og ein vídd saman­stendur af um 20 mælingum sem birtar eru í vísitölu hverrar víddar fyrir sig. Unnið verður áfram að þróun mælaborðsins í nánu sam­starfi við farsældarsamfélagið allt.

Skoða Mælaborð farsældar barna

Skoða vefinn Farsæld barna