Mæla með hólfaskiptingu í leikskólum og grunnskólum

Fréttir|20. ágúst 2021

Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út leiðbeiningar fyrir skóla- og frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin hvetur til samræmds verklags í öllum sveitarfélögum.

Börn á leikskólaaldri verða áfram undanskilin fjölda- og nálægðartakmörkunum en mælst er til þess að ekki fleiri en 100 grunnskólanemendur séu í sama rými. Skólastarf í leik- og grunnskólum skal vera eins hólfaskipt og kostur er. Tilgangurinn með hólfaskiptingu er að koma í veg fyrir röskun á starfsemi ef upp koma smit. Starfsfólk skólanna er hvatt til að fara sem minnst á milli hólfa en ef svo ber undir þá skal hver og einn gæta vel að persónubundnum sóttvörnum. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Leiðbeiningum Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins fyrir skóla- og frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu. Leiðbeiningarnar voru gefnar út síðdegis í dag. 

Í leiðbeiningunum segir að ef ekki er mögulegt að halda eins metra nálægðartakmörkun starfsfólks þá beri að nota grímur. Þó er ekki skylda að bera grímu í samskiptum við leikskólabörn. Sama regla á við starfsfólk í grunnskólum. 

Hvað tónlistarskólana varðar þá er einnig mælt með því að starfsemin sé hólfaskipt. Nemendur á grunnskólaaldri eru undanþegnir eins metra fjarlægðarmörkum og grímuskyldu í starfi tónlistarskóla og skólahljómsveita. Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í tónlistarskólanna en skulu bera grímu. Þá mælir Almannavarnanefnd með því að viðburðum tónlistarskólanna sé streymt en sé það ekki gerlegt þá bera að virða eins metra regluna, viðhafa grímuskyldu og skrá gesti í númeruð sæti. 

Leiðbeiningar Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins