Lýsa yfir áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunnskólanna í borginni
Félag skólastjórnenda í Reykjavík lýsir yfir verulegum áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunnskólanna í Reykjavík og skertri þjónustu við nemendur. Þetta er meðal þess sem kemur fram á ályktun sem samþykkt var á fundi skólastjórnenda grunnskóla Reykjavíkur 7. janúar síðastliðinn.
Í ályktuninni segir jafnframt að umtalsverður niðurskurður, sem gripið var til í kreppunni, í almennum rekstri og við stjórnun hafi ekki verið bættur. Því hafi rekstur skólanna verið erfiður á síðustu árum. Þá muni sú ákvörðun borgaryfirvalda um að halli á rekstri skólanna árið 2015 flytjist yfir á þetta ár, á sama tíma og enn frekari niðurskurður hafi verið boðaður, leiða til að þjónusta við reykvíska grunnskólanemendur verði skert á komandi misserum.
Ályktunin í heild:
Fundur skólastjóra í Reykjavík, haldinn þann 7. janúar 2016, lýsir yfir verulegum áhyggjum af fjárhagslegri stöðu grunnskólanna í borginni og skertri þjónustu við nemendur.
Umtalsverður niðurskurður, sem gripið var til í kreppunni, bæði á almennum rekstri og stjórnun, hefur ekki verið bættur og því hefur rekstur skólanna verið afar erfiður. Á síðustu árum hefur niðurskurður enn verið aukinn og í því sambandi má benda á niðurskurð til sérkennslu á árinu 2015, þar sem fjármagn hefur ekki fylgt launaþróun, auk niðurskurðar til annarra þátta. Sú ákvörðun borgaryfirvalda að skólar flytji nú með sér halla á rekstri ársins 2015 yfir á 2016 mun, um leið og boðaður er frekari niðurskurður, eingöngu leiða til skertrar þjónustu við nemendur í grunnskólum borgarinnar á komandi misserum.
Fjármagn til grunnskólanna í borginni hefur ekki fylgt þeirri verðlags- og launaþróun sem orðið hefur. Áhyggjur eru af því að fjármagn til reksturs grunnskóla í Reykjavík sé alls ekki í takt við lögboðið hlutverk og skyldur hans.
F.h. Félags skólastjórnenda í Reykjavík,
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir
formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík