Lýsa þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu grunnskóla

Fréttir|9. september 2016

Stjórn og formenn svæðafélaga Skólastjórafélags Íslands lýsa yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu grunnskólanna. Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem var samþykkt í dag, 9. september. 

Skólastjórafélagið segir í ályktuninni að óraunhæfar fjárúthlutanir til grunnskóla og niðurskurður frá hruni leiði til skerðingar á lögbundinni þjónustu skólanna.

Þá er nefnt að í höfuðborginni sé að mati Skólastjórafélagsins notað „óraunhæft og úrelt reiknilíkan til að deila út fjármunum til grunnskólans“ og launakostnaður vegna sérkennslu og stuðnings við nemendur hafi ekki verið bættur að fullu.

Mikilvægt sé að nemendur njóti grunnþjónustu og skólastjórum sé gert kleift að sinna lögbundinni þjónustu sem lúti að því að „efla faglegt skólastarf með hagmuni nemenda að leiðarljósi, eins og segir orðrétt í ályktuninni. 

Ályktunin í heild.