Lýsa andstöðu við að Tækniskólinn taki yfir starfsemi FÁ

Fréttir|22. maí 2017

Fundur faggreinafélaga í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum lýsir andstöðu við hugmyndir um að leggja Fjölbrautaskólann við Ármúla niður og að starfsemi hans verði tekin yfir af Tækniskólanum.

Fundur faggreinafélaga í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum lýsir andstöðu við hugmyndir um að leggja Fjölbrautaskólann við Ármúla niður og að starfsemi hans verði tekin yfir af Tækniskólanum. Fundur faggreinafélaganna, sem var haldinn 18. maí 2017, sendi frá sér ályktun þessa efnis. 

Þar segir jafnframt að engin fagleg rök sé fyrir þessari aðgerð og viðbúið sé að „skólabragur FÁ hverfi við samruna við svo stóra stofnun sem Tækniskólinn er“. Þá séu aðferðirnar sem hafa verið notaðar við undirbúning málsins bæði ólýðræðislegar og ófaglegar. „Faggreinafélögin gera þá kröfu til menntamálaráðherra að hann noti ekki vald sitt til að fara offari í að breyta skipulagi skóla án undangenginnar faglegrar og lýðræðislegrar umræðu," segir í ályktuninni. 

 

Ályktun um niðurlagningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og yfirtöku Tækniskólans:

„Fundur faggreinafélaga í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum lýsir yfir andstöðu við hugmyndir um að leggja niður Fjölbrautaskólann við Ármúla og að starfsemi hans verði tekin yfir af Tækniskólanum.
Ekki hafa verið sett fram nein fagleg rök fyrir þessu en Fjölbrautaskólinn við Ármúla er stór, vel rekinn, rótgróinn skóli sem hefur lagt sig fram um að mæta þörfum ólíkra nemenda. Viðbúið er að skólabragur FÁ hverfi við samruna í svo stóra stofnun sem Tækniskólinn er.
Aðferðirnar sem hafa verið notaðar við undirbúning þessa máls eru bæði ólýðræðislegar og ófaglegar. Faggreinafélögin gera þá kröfu til menntamálaráðherra að hann noti ekki vald sitt til að fara offari í að breyta skipulagi skóla án undangenginnar faglegrar og lýðræðislegrar umræðu.“

Reykjavík, 18. maí 2017