Lýsa áhyggjum vegna hugmynda um sameiningu
Kennarar og starfsfólk Iðnskólans í Hafnarfirði lýsa yfir áhyggjum af fyrirhugaðri sameiningu Tækniskólans og Iðnskólans í Hafnarfirði í ályktun sem samþykkt var á fundi Kennarafélags skólans í gær. Þar segir að mikilvægt sé að skólinn starfi áfram sem sjálfstæð eining, enda sé hann rótgróinn hluti af skólasamfélagi Hafnarfjarðar. Ennfremur séu allir starfsmenn skólans og nemendur settir í óvissu.
Ályktunin í heild er svohljóðandi:
Kennarar og starfsfólk Iðnskólans í Hafnarfirði lýsa áhyggjum sínum af fyrirhugaðri sameiningu Tækniskólans, skóla atvinnulífsins og Iðnskólans í Hafnarfirði. Starfsmenn allir sem og skólaæskan í Hafnarfirði og nágrenni er sett í óvissu með þessu.
Mikilvægt er að gæta þess að skólinn starfi áfram sem sjálfstæð eining. Hann er rótgróinn hluti af skólasamfélagi Hafnarfjarðar til áratuga og það er brýnt hagsmunamál starfsmanna, skólaæskunnar í Hafnarfirði og bæjaryfirvalda að skólinn verði áfram starfræktur með sambærilegu námsframboði og nú er.
Skorað er á bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að láta málið til sín taka.
Menntamálayfirvöldum er bent á að fýsileikaútreikningar og hagkvæmni stærðarinnar er ekki hinn einhlíti sannleikur.
Skorað er á hlutaðeigandi yfirvöld að vanda ákvörðun sína.