Lýsa áhyggjum af skerðingu tungumálakennslu
STÍL, Samtök tungumálakennara á Íslandi hafa sent frá sér eftirfarandi ályntun:
Samtök tungumálakennara á Íslandi lýsa yfir áhyggjum af skerðingu tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum. Sérstaklega höfum við áhyggjur af fækkun kennslustunda og minnkandi möguleikum nemenda til vals um nám í þriðja erlenda tungumálinu, frönsku, spænsku og þýsku. Líklegt er einnig að mati samtakanna að árgangar nemenda með minna nám að baki í ensku og norrænum málum en hingað til hefur þótt fullnægjandi muni útskrifast úr framhaldsskólum á næstu árum. STÍL telur þetta vera mikla öfugþróun og alveg úr takti við vaxandi þörf fyrir starfsfólk í ýmsum greinum sem hefur góða kunnáttu í tveimur til þremur erlendum tungumálum. Til lengri tíma litið hefur samdráttur í kennslu erlendra tungumála í grunn- og framhaldsskólum alvarlegar afleiðingar fyrir almenna menntun í landinu s.s. fyrir tungumálakennslu á háskólastigi, í samskiptum og viðskiptum landsins við önnur lönd.
Samtök tungumálakennara á Íslandi halda upp á þrjátíu ára afmæli samtakanna í haust. STÍL skorar á menntamálayfirvöld að leggjast á árar með samtökunum á afmælisárinu og gera ráðstafanir til að auka að nýju nám og kennslu í erlendum tungumálum í grunn- og framhaldsskólum landsins.