Lykilskilaboð og forvarnir í skólum

Fréttir|16. mars 2020

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út skýrar leiðbeiningar um forvarnir gegn COVID-19 í skólum.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, UNICEF og Rauða krossins um lykilskilaboð og forvarnaraðgerðir vegna COVID-19 í skólum. Í þeim eru settar fram skýrar og framkvæmanlegar leiðbeiningar um öruggar aðgerðir sem tengjast því að koma í veg fyrir smit, greina það snemma og verjast COVID-19 í skólum og öðrum menntastofnunum. Þýðingin var unnin af þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins og staðfærð í samvinnu við embætti landlæknis.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að með því að veita upplýsingar og fræða fólk um staðreyndir um COVID-19 megi draga úr ótta og kvíða nemenda varðandi sjúkdóminn. „ Í þessum leiðbeiningum eru sett fram lykilskilaboð og atriði fyrir skólastjórnendur, kennara og starfsfólk skóla, foreldra, umönnunaraðila og almenning, sem og börnin sjálf, til að þau geti tekið þátt í að efla öryggi og heilbrigði innan skólanna.

Fræðsla getur hvatt nemendur til að tala fyrir forvörnum gegn sjúkdómum heima fyrir, í skólum og í samfélaginu með því að ræða við aðra um hvernig koma má í veg fyrir útbreiðslu þeirra. Í leiðbeiningunum er einnig að finna ýmsa gátlista og hugmyndir að heilbrigðisfræðslu fyrir ólíka aldurshópa, segir jafnframt í frétt ráðuneytisins. 

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér upplýsingaritið.