Lykillinn að bættum námsárangri

Fréttir|5. janúar 2015

Töluverð umræða hefur verið um hvernig efla eigi námsárangur nemenda í grunn- og framhaldskólum. Menntamálaráðherra hefur lagt fram Hvítbók um umbætur í menntun með þau meginmarkmið að efla læsi og námsframvindu nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi.

Nú í janúar 2015 munu starfshópar á vegum menntamálaráðuneytisins leggja fram aðgerðaráætlanir um eflingu læsis, um aðgerðir til að vinna með brottfall nemenda í framhaldsskólum, um styttingu námstíma framhaldsskólans og eflingu starfsnáms. Þar skiptir máli að horft sé til lengri frekar en styttri tíma. Hér má ekki leggja fram skammtímalausnir eða átaksverkefni. Ég tel mikilvægt að settar verði markvissar þróunaráætlanir sem lúta að starfsþróun skólastjórnenda og kennara til framtíðar.

Það sem skiptir meginmáli þegar rætt er um að efla námsárangur nemenda er að bæta gæði þess náms sem nemendum stendur til boða. Rannsóknir sýna að það eru tengsl á milli námsárangurs nemenda og starfsþróunar kennara og skólastjórnenda. Á þetta hefur Viviane Robinson bent í bók sinni Students Centered Leadership sem kom út árið 2011.

Starfsþróun skólastjórnenda og kennara á vettvangi er lykillinn að því að bæta námsárangur nemenda.

Í niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í Boston vorið 2014 um viðhorf kennara til starfsþróunar kemur fram að það eru kennararnir sem vita best hvaða starfsþróun þeir þarfnast og ef skólastjórnendur og kennarar vinna saman að því að móta þá starfsþróun þá verður til námssamfélag sem stuðlar að markvissum námsárangri nemenda.

Í rannsókninni kemur einnig fram að kennarar eru í meginatriðum ekki sáttir við þá símenntun sem er í boði og telja hana í mörgum tilvikum ekki skila sér í þeirri starfsþróun sem nauðsynleg er til að ná árangri í námi nemenda. Þessi umræða hefur einnig átt sér stað hér á landi en ekki eru til neinar rannsóknir eða athuganir um þetta efni. Áhugavert væri að Fagráð um starfsþróun myndi kanna viðhorf og þarfir kennara og skólastjórnenda til starfsþróunar hérlendis og bera saman við niðurstöður erlendu rannsóknarinnar sem getið er hér á undan

Kennarar sem tóku þátt í rannsókninni eru á sama tíma sammála um hvernig árangurrík starfsþróun á að vera. Það er að starfsþróun byggist á ígrundun kennara á eigin starfi, leiðsögn og samvinnu kennara þar sem áhersla er lögð á nám nemenda. Sú starfsþróun þarf að stuðla að því að efla og bæta kennsluaðferðir, áætlanagerð og skólaþróun sem byggir til framtíðar.

Árangurrík starfsþróun þarf að byggjast á því sem kennarar eru að fást við í daglegu starfi. Starfsþróun þarf að vera á vettvangi og undir faglegri leiðsögn sérfræðinga (kennslufræðinga) eða í samvinnu stjórnenda og kennara á vinnustaðnum má þar nefna meðal annars nefna jafningjafræðslu og starfendarannsóknir. Starfsþróun þarf að vera viðvarandi í ákveðinn tíma, til dæmis eitt eða fleiri námsár, þar sem kennarar eru þátttakendur í eigin starfsþróun með ígrundun í starfi og leiðsögn. Áherslan þarf að vera á nám nemenda og árangur og jafnhliða markvissri starfsþróun þarf að fara fram mat á námsárangri nemenda.

Skólastjórnendur og kennarar eru sérfræðingar og fagmenn sem vita best hvernig á að efla námsárangur nemenda og því er afar mikilvægt að efla starfsþróun þeirra á vettvangi þar sem megináherslan er á að efla námsárangur nemenda.

Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands.