Lýðræði, mannréttindi og nýjar leiðir í kennslu
Fréttir|22. október 2025

Sprotasjóður hefur sett fram forgangsatriði vegna umsókna um þróunverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum á næsta ári.
Stjórn Sprotasjóðs hefur kynnt forgangsatriði fyrir næsta styrkár. Opnað verður fyrir umsóknir um mánaðamótin nóvember/desember.
Forgangsatriði vegna úthlutunar ársins 2026 verða
- Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
- Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.
Sprotasjóður styrkti 30 skólaverkefni á þessu ári, alls var tæplega 81 milljón til skiptanna. Styrkupphæðir undangenginna ára hafa verið á bilinu frá 500 þúsund til sjö milljónir.
Hægt er að kynna sér styrkveitingar fyrri ára á vef Rannís.
Nú er góður tími til að byrja að móta verkefnahugmyndir og gefa þeim svigrúm til að þróast.
Hægt verður að skila umsóknum til klukkan 15:00 mánudaginn 2. febrúar 2026.
Gagnlegir hlekkir