Lokahátíð Nótunnar í Hörpu á morgun

Fréttir|22. mars 2014

Tónlistarskólar landsins fagna uppskeru vetrarstarfsins um þessar mundir með hátíðahöldum undir formerkjum „Nótunnar 2014“. Lokahátíð Nótunnar fer fram á sunnudaginn kemur þar sem 24 tónlistaratriði verða flutt á tvennum lokatónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Þar munu um 100 tónlistarnemendur frá 18 tónlistarskólum út um land allt koma fram.

Tónleikar I

kl. 11:30

Tónlistaratriði í grunn- og miðnámi

Tónleikar II 

kl. 14:00

Tónlistaratriði í opnum flokki og í framhaldsnámi

Lokaathöfn

kl. 16:30

Afhending viðurkenninga / tíu handhafar Nótunnar 2014 flytja sín atriði*

* RUV tekur lokaathöfnina upp

Efnisskrá dagsins má sjá hér.

Allir velkomnir – aðgangur ókeypis

Tónlistarnemendur munu frá klukkan ellefu bjóða upp á lifandi tónlist í opnu rými Hörpu á milli viðburða.

{slider Nánar um Nótuna 2014}

Tónlistarskólar landsins fagna uppskeru vetrarstarfsins um þessar mundir með hátíðahöldum undir formerkjum „Nótunnar 2014“.

Lokahátíð Nótunnar fer fram á sunnudaginn kemur þar sem 24 tónlistaratriði verða flutt á tvennum lokatónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Þar munu um 100 tónlistarnemendur frá 18 tónlistarskólum út um land allt koma fram.

Þessir tónlistarnemendur hafa verið valdir til þátttöku á lokahátíðinni af fernum svæðistónleikum Nótunnar þar sem um 500 nemendur frá um 50 tónlistarskólum komu fram.

Tónleikarnir á sunnudaginn sýna þversnið af starfsemi tónlistarskóla á landinu. Þar koma fram nemendur frá Suzukitónlistarskólum, söngskólum, „rytmískum og klassískum“ skólum, skólahljómsveitum o.fl. Flytjendur eru á öllum aldri og öllum stigum tónlistarnáms.

Tónleikar I kl. 11:30 – tónlistaratriði í grunn- og miðnámi
Tónleikar II kl. 14:00 – tónlistaratriði í opnum flokki og í framhaldsnámi
Lokaathöfn kl. 16:30 – afhending viðurkenninga / tíu handhafar Nótunnar 2014 flytja sín atriði (RUV tekur lokaathöfnina upp)

Tónlistarnemendur bjóða upp á lifandi tónlist í opnu rými Hörpu á milli viðburða

Lokaathöfn – afhending viðurkenninga / tíu handhafar Nótunnar 2014 flytja sín verk

Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra
Á lokaathöfn Nótunnar kl. 16:30 mun Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flytja ávarp og afhenda verðlaunagripi Nótunnar.

Sérstök valnefnd hefur það hlutverk að velja tíu framúrskarandi atriði af tvennum tónleikum, sem fram fara fyrr um daginn, en þau hreppa verðlaunagrip Nótunnar 2014. Valnefndina skipar valinkunnugt lið: Helga Þórarinsdóttir, víóluleikari, Martial Nardeau, flautuleikari og Þóra Einarsdóttir óperusöngkona.

Handhafar „NÓTUNNAR 2014“ flytja sín verk
Þau tíu atriði sem fá verðlaunagripinn „NÓTUNA 2014“ munu flytja sín verk á lokaathöfninni en ríkissjónvarpið mun taka athöfnina upp. Eftirfarandi viðurkenningar verða einnig veittar á athöfninni:

„Hvatningarverðlaun Töfrahurðar“
Töfrahurð tónlistarhátíð veitir einum framúrskarandi þátttakanda í grunnnámi á Nótunni „hvatningarverðlaun“ með greiðslu skólagjalda vegna tónlistarnáms viðkomandi næstkomandi skólaár. Verðlaunin eru veitt nemanda í grunnnámi í anda starfsemi Töfrahurðar. Töfrahurð er vönduð tónlistarhátíð fyrir yngstu kynslóðina sem Pamela De Sensi stýrir í Salnum í Kópavogi og í Tónlistarsafni Íslands.

„Tóngjafinn“
Tónastöðin veitir „besta atriði“ Nótunnar sérstaka viðurkenningu undir heitinu „Tóngjafinn“. Verðlaunin leggja áherslu á gildi tónlistarnáms fyrir alhliða þroska nemenda og heilbrigða sjálfsmynd barna og ungmenna. Hlutverk tónlistarskóla landsins sem mennta- og menningarstofnana er jafnframt undirstrikað. Viðurkenningunni fylgir gjafabréf frá Tónastöðinni.

„Farandgripur Nótunnar“
Besta atriði hátíðarinnar er verðlaunað sérstaklega með farandgrip sem varðveitast skal í viðkomandi tónlistarskóla á milli hátíða.

Ungir sem aldnir eru hvattir til að mæta í Hörpu og taka þátt í uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins.

Allir velkomnir – aðgangur ókeypis

 

{/sliders}