Lokadagur þings KÍ

Fréttir|4. apríl 2014

Fjórði og síðasti þingdagur KÍ er hafinn. Dagskráin hefst á því að Ægir Karl Ægisson, formaður Siðaráðs KÍ, heldur erindi um að siðferðislegt sjálfræði kennarastéttarinnar sé að kennarar taki sér vald og ábyrgð í starfi sínu til góðra verka.

Að loknu erindi Ægis munu nefndir skila af sér tillögum sem verða ræddar og teknar til afgreiðslu. Eftir hádegi verður kjöri formanns og varaformanns KÍ lýst. Þinglok eru áætluð um kaffileytið í dag.