Lokað á Þorláksmessu

Skrifstofa Kennarasambandsins verður opin með hefðbundnum hætti milli jóla og nýárs.
Skrifstofa Kennarasambandsins er lokuð á Þorláksmessu og yfir hátíðardaga. Opið verður á skrifstofunni með hefðbundnum hætti milli jóla og nýárs. Félagsmönnum er jafnframt bent á að gott er að senda fyrirspurnir í gegnum vefsíðuna.
Skrifstofan opnar á nýju ári, 2. janúar 2025, klukkan 10 að vanda.
Þjónusta Orlofssjóðs yfir hátíðarnar
Orlofssjóður verður ekki með vakt yfir hátíðarnar en starfsfólk sjóðsins mun lesa tölvupósta á milli klukkan 11:00 og 12:00 á Þorláksmessu.
Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um hátíðarnar, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.
Upplýsingar um umsjónarmenn er að finna í leigusamningi. Netfang Orlofssjóðs er orlof@ki.is
Starfsfólk Kennarasambandsins sendir félagsmönnum og fjölskyldum þeirra óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Gleðilega hátíð
