Lögmaður tekur til starfa hjá FG

Fréttir|27. apríl 2021

Karl Óttar Pétursson hefur verið ráðinn í starf lögmanns hjá Félagi grunnskólakennara.

Karl Óttar hefur undanfarin ár starfað sem bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Þar áður var hann forstöðumaður lögfræðisviðs Arion banka. Karl Óttar lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, með heimspeki sem aukagrein. Árið 2002 lauk hann svo embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og hlaut árið 2011 löggildingu sem héraðsdómslögmaður.

Karl er boðinn velkominn til starfa.