Ljóðahornið er nýjung í Skólavörðunni
Ljóðahorninu er ætlað að draga fram það fjölbreytta ljóðaúrval sem fyrirfinnst á landinu, rifja upp gömul kvæði og draga fram í dagsljósið hugarheim yngri höfunda og ljóð þeirra.
Ljóðið lifir góðu lífi á Íslandi sem gefur okkur fögur fyrirheit um að íslensk tunga, sem skilgreina má sem fámennistungu, muni standast hið eilífa álagspróf sem á hana er lagt og mörg okkar óttast.
Ljóðahorninu er ætlað að draga fram það fjölbreytta ljóðaúrval sem fyrirfinnst á landinu, rifja upp gömul kvæði og draga fram í dagsljósið hugarheim yngri höfunda og ljóð þeirra.
Ljóðið er lifandi, meitlað form þar sem dýpt tungumálsins fær notið sín í hrynjandi, myndmáli og stílbrögðum. Knöpp bygging ljóðsins gefur lesanda færi á að staldra við í amstri dagsins og gefa huganum lausan tauminn.
Best er að byrja á því að njóta ljóða með skynfærum, upplifa hrynjandina og stílbrögðin og skynja myndirnar sem birtast. Svo má endurtaka lestur og kafa dýpra, undir yfirborðið og kryfja merkingu.
Njótið og skynjið – góðar ljóðastundir.
Vinir
Sú var tíðin
að við mér brostu
óteljandi vinir.
Nú á ég
aðeins einn.
Hversvegna,
hversvegna,
spyr ég
á andvökunóttum.
Nú hefur sá eini
svarað:
Segðu mér einungis,
segir hann,
það sem þú veist
að ég vil heyra,
fyrir alla muni
ekki allan
hug þinn,
að öðrum kosti
missir þú
mig líka.
Jón úr Vör
Úr Altarisherberginu
Síðdegi í september
Í haustvindinum
blakta hvít sængurver
grannkonu minnar
rétt eins og óskrifuð blöð
sem biðja um ný ljóð.
Vilborg Dagbjartsdóttir
Úr Síðdegi
Móðurmálið
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krissins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda,
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
Hallgrímur Pétursson / með sínu lagi
Úr Skólaljóðunum
Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber sá um samantekt.