Litríkt alþjóðaverkefni
Stapaskóli í Reykjanesbæ tók þátt í áhrifaríku og listrænu samstarfsverkefni sem bar heitið Ink of Unity – Celebrating our true colors í ár.
Verkefnið var eTwinning verkefni, unnið í samstarfi við skóla í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, og tók fyrir stór og tímabær viðfangsefni: sjálfsmynd, fjölbreytileika og virðingu.
Í október veitti landskrifstofa eTwinning verkefninu viðurkenningu sem eTwinning verkefni ársins 2025. Jafnframt hlutu kennaranir sem stóðu að verkefninu, þær Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir og Selma Ruth Iqbal, gæðaviðurkenningu fyrir faglega og metnaðarfulla vinnu í alþjóðlegu skólasamstarfi.
Hugmyndin kviknaði í Finnlandi
Hugmyndin að verkefninu varð til á ráðstefnu um andrasisma sem haldin var í Finnlandi vorið 2024. Þar tóku kennararnir þátt og fóru heim fullar af innblæstri. Þær sáu tækifæri til að efla sjálfsþekkingu og víðsýni nemenda á aldrinum 10–16 ára með skapandi og samfélagslega þýðingarmikilli nálgun.
Verkefnið féll einstaklega vel að stefnu Stapaskóla, þar sem virðing, fjölbreytileiki og jákvæð sjálfsmynd eru leiðarljós skólans. Einnig styðst það við hugmyndafræði Heillaspora, sem leggur áherslu á inngildingu og styrkingu sjálfsmyndar.
Dýpri skilningur á fjölbreytileika
Ink of Unity byggði á þremur meginmarkmiðum:
- Að skoða húðliti sem hluta af litrófi mannkynsins, frekar en að flokka fólk í einfalda lita- eða kynþáttahópa.
- Að brjóta niður staðalmyndir um tengsl húðlitar og þjóðernis.
- Að styrkja sjálfsmynd nemenda og draga fram það sem sameinar frekar en aðgreinir.
Verkefnið var innblásið af verkum listakonunnar Angelicu Dass, sem hefur ljósmyndað fjölbreytileika húðlita fólks um allan heim.
Frá hugmynd til lifandi samstarfs
Í upphafi verkefnisins kynntu nemendur skólana sína með stuttum myndböndum á eTwinning-vettvanginum og hófu síðan sjálfsmyndarvinnu.
Nemendur blönduðu vatnsliti til að fanga sinn eigin húðlit og bjuggu til verk sem tjáðu þeirra sjálfsmynd og reynsluheim. Einnig sömdu þau ljóð og sköpuðu persónuleg listaverk sem var síðan deilt á sameiginlegum Padlet-vegg. Þar veittu þau hvert öðru uppbyggilega endurgjöf sem einkenndist af virðingu og forvitni.

Eydís Inga Valsdóttir, teymisstjóri hjá Rannís, Hólmfríður Rún Guðmundsdóttir og Selma Ruth Iqbal, kennarar við Stapaskóla og Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.
Útkoman varð bæði persónuleg og áhrifarík og var sett upp á sýningu í Stapasafni, bókasafni Stapaskóla. Jafnframt voru öll verk verkefnisins sýnd á borgarbókasafninu í Linköping í Svíþjóð.
Kennarar lýsa því að vinnan hafi leitt til „dýpri og persónulegri samræðna en hefðbundin verkefni gefa rými fyrir“. Nemendur sýndu mikla einbeitingu, þrautseigju og umburðarlyndi í skapandi ferlinu. Með því öðluðust þeir betri skilning á eigin sjálfsmynd og því hvernig fjölbreytileiki gerir samfélagið ríkara.
Áskoranir í samstarfi yfir landamæri
Alþjóðlegt skólasamstarf getur verið krefjandi og Ink of Unity var engin undantekning. Mismunandi skóladagatöl og aðstæður kölluðu á sveigjanleika og endurteknar aðlaganir. Tveir skólar þurftu meira að segja að hætta þátttöku vegna tímaleysis.
Eftir stóðu þó fjórir skólar sem unnu verkefnið af mikilli alúð og árangurinn lét ekki á sér standa. Sveigjanlegir skilatímar, opin samskipti og jákvæð nálgun gerðu það að verkum að verkefnið náði markmiðum sínum og meira til.
Afurðir og áhrif
Lokaniðurstaðan var rafbók með öllum listaverkum og ljóðum nemenda.
Verkefnið hafði jákvæð áhrif á:
- Námsáhuga og sköpunargleði nemenda
- Skólabrag og umræðu um virðingu og fjölbreytileika
- Alþjóðlegt tengslanet Stapaskóla Ink of Unity er dæmi um hvernig skapandi nálgun getur opnað dyr að dýpri skilningi og styrkara samfélagi innan skólans.
Að sögn Hólmfríðar og Selmu er lykillinn einfaldur. „Bara kýlið á það! Það er auðvelt að hefja verkefni í eTwinning og þar er að finna fjölmargar hugmyndir sem auðvelt er að tengja við námskrá.“