Litlu manneskjurnar okkar eiga það besta skilið

Halldóra Guðmundsdóttir er félagi Skólavörðunnar á haustönn.
Félaginn er fastur liður í Skólavörðunni. Hugmyndin er einföld; leitað er til félagsmanns og hann spurður þriggja lykilspurninga. Nú sem hingað til hafa svör þátttakenda verið frábær. Hér á eftir svarar Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Drafnarsteini í Reykjavík, spurningum Skólavörðunnar.
Ég er kennari/leikskólastjóri vegna þess ...
Að ég hef gaman af því að vinna með fólki á öllum aldri, þar sem samstarf og mannleg samskipti heilla mig. Í leikskólanum eru engir tveir dagar eins og mér finnst gott vesen skemmtilegt svo að fjölbreyttar áskoranir í starfi leikskólastjórans henta mér vel. Svo hef ég líklega alltaf verið frekar stjórnsöm.
Besta stund vikunnar ...
Þær eru nokkrar og erfitt að gera upp á milli. Þegar ég helli upp á kaffi á laugardagsmorgni, þegar ég knúsa börnin mín þegar ég kem heim, þegar ég heyri æðislega heimspekileg samtöl barna í leikskólanum mínum (sem gerist stundum oft í viku), þegar ég leggst í slökun á jógadýnuna mína eftir jógatímann, þegar ég dansa í Kramhúsinu á þriðjudagskvöldum...
Þessu myndi ég vilja breyta ...
Ég myndi vilja að kennarastarfið væri eins eftirsótt og það á skilið, sérstaklega leikskólakennarastarfið. Litlu manneskjurnar okkar eiga það besta skilið og það er svo gaman að vinna í leikskóla, svo mikið frelsi í kennsluháttum. Þá gætum við skólastjórar átt alvöru val um starfsfólk og jafnrétti til náms væri þar með aukið hjá börnum. Ég myndi líka vilja að það væru til fjölbreyttari úrræði fyrir börn og unglinga sem við fagfólkið gætum skoðað með foreldrum og biðlistar væru ekki til.
Síðast en ekki síst myndi ég vilja að öll dýrin í skóginum væru vinir.
Félaginn birtist fyrst í Skólavörðunni, haustútgáfu 2020.