Lítill vilji til samninga

Fréttir|4. september 2014

Næsti fundur í kjaradeilu Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga er boðaður mánudaginn 8. september kl. 13:00 í húsakynnum ríkissáttasemjara. Sá fundur mun leiða í ljós hvort samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vilji og eða hafi umboð til að snúa við blaðinu og koma að samningaborðinu af alvörusegir Sigrún Grendal, formaður félagsins.

„Félagsmenn FT, kennarar og stjórnendur í tónlistarskólum, hafa ekki fengið alvöru kjaraviðræður síðan fyrir hrun en þeir samningar sem voru í gildi á þeirri örlagastundu voru gerðir árið 2006“. 

Kjarasamningar félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga runnu út 31. janúar 2014.

„Það verður að segjast eins og er að hingað til er áhugaleysi og skortur á einlægum vilja til samningavinnu það eina sem andað hefur frá viðsemjendum okkar yfir samningaborðið. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það að þessi staða, hvernig sem á málið er litið, er í engu ásættanleg. Vinnubrögð og vinnulag eru úr takti við aðra þá vinnu sem sömu aðilar feta á öðrum vettvangi um bætt vinnubrögð við kjarasamningagerð“ segir Sigrún.

„Það sem félagsmönnum er boðið upp á er í algjöru ósamræmi við meginmarkmið samningsaðila sem lögð hafa verið fram í kjarasamningsviðræðunum. Jafnrétti er að engu haft, horft til félaga okkar í KÍ, stéttarfélagi sem nær til kennara og stjórnenda í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum. Faglega séð eru þau skilaboð sem framganga viðsemjenda gætu falið í sér í fullkomnu ósamræmi við hugmyndafræði nýrrar menntastefnu þjóðarinnar og nýja menningarstefnu og áherslur út um heim á sköpun og nýsköpun sem mikilvæga þætti fyrir einstaklinga og atvinnulíf, sem og aukinn skilning manna á gildi lista og menningar í stóru samhengi og nægir þar að benda á þessa þætti sem tæki samtímans í menntun. Við bindum vonir við að næsti fundur verði upphafið að alvöru samningavinnu“.