Lítil skref sem eru samt rosalega stór

Hanna Rún Eiríksdóttir er handhafi Íslensku menntaverðlaunanna í flokknum „framúrskarandi kennari“.
Allir einstaklingar eiga að fá tækifæri til að tjá sig og hafa þannig eitthvað um daglegt líf sitt að segja. Þetta er sýn Hönnu Rúnar Eiríksdóttur, kennara í Klettaskóla, en hún hefur á undanförnum árum varið miklum tíma í að finna leiðir svo fatlaðir nemendur geti tjáð sig og átt samskipti við aðra.
Hanna Rún hlaut Íslensku menntaverðlaunin síðasta haust. Verðlaunin voru í flokknum „framúrskarandi kennari“ og víst er að þeir sem þekkja til starfa Hönnu Rúnar voru ekki hissa á að þau féllu henni í skaut.
Við heimsóttum Hönnu Rún í Klettaskóla á dögunum. Hanna Rún tók á móti blaðamanni og síðan var gengið um rangala hússins þar til komið var í kennslustofu Hönnu Rúnar – sem gengur undir nafninu Augnablik. Meira um það síðar, en við byrjum á að spyrja Hönnu Rún hvers vegna hún lagði kennsluna fyrir sig.
„Ég ákvað snemma að ég vildi verða kennari og mjög fljótt vissi ég að ég vildi verða sérkennari. Að vinna með fötluðum börnum hefur alltaf heillað mig og það kann að spila inn í að á uppvaxtarárunum umgekkst ég frænda minn sem var með þroskaskerðingu. Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að vera í kringum hann og mig langaði að læra það. Áhugi minn var vakinn,“ segir Hanna Rún.
Hanna Rún útskrifaðist með grunnskólakennarapróf og eins og fyrr segir var stefnan sett á að verða sérkennari. „Á þessum tíma var kerfið þannig að ég varð að kenna í almennum skóla í tvö ár til að geta lært til sérkennara. Satt að segja lá áhugi minn ekki í almenna grunnskólanum þannig að ég réði mig til starfa í leikskóla. Mér var falið að annast einhverfan dreng og ég sinnti því starfi í tvö ár eða þar til ég sá auglýst eftir kennara í Safamýrarskóla,“ segir Hanna Rún og bætir við að hún hafi sótt um starfið og fengið það.
„Mér er alltaf minnisstætt að þegar ég gekk í fyrsta sinn inn í Safamýrarskóla þá vissi ég strax að ég var á réttum stað. Skólinn var óhefðbundinn í mörgu tilliti og mér fannst starfið fela í sér mikla áskorun en ég vissi líka að ég vildi kenna börnum með miklar og flóknar fatlanir.“
Búum til pláss
Í kennslustofunni er tölvubúnaður af ýmsum toga, bækur og leikföng og andrúmsloftið er notalegt. „Það er öðruvísi að kenna hér en í almennum grunnskólum. Ég hef aldrei séð eftir að hafa valið þessa leið þótt ég sé ekki löglegur sérkennari því ég hef enn ekki lokið því námi. Hins vegar hef ég menntað mig í upplýsingatækni og farið á fjölda námskeiða sem hafa reynst mér vel.“
Safamýrarskóli, þar sem Hanna Rún hóf ferilinn, var sameinaður Öskjuhlíðarskóla árið 2011 og fékk þá nafnið Klettaskóli. Sameiningin þótti á þeim tíma til bóta en hugmyndin var að reka lítinn sérskóla með um það bil 80 nemendum. Nemendur í Klettaskóla eru nú 124 og starfsmannahópurinn telur 160 manns, en þar af eru margir í hlutastarfi. Hún segir nemendafjöldann vissulega mikinn. „Við búum til pláss fyrir börn ef greiningargögn eru í lagi. Það þrengir vissulega að okkur en við segjum ekki nei við neinn sem uppfyllir greiningarviðmið skólans,“ segir Hanna Rún og bætir við að þörf sé á fleiri skólum á borð við Klettaskóla. „Það er mikilvægt að hafa val. Nú er Arnarskóli nýstofnaður einkarekinn sérskóli sem vonandi á eftir að vaxa og dafna og með tímanum taka við fleiri nemendum.“
Augun stjórna tölvunni
Tjáskipti og sjálfstæði nemenda til athafna er Hönnu Rún afar hugleikið. Hún hefur á síðustu árum verið í fararbroddi við að innleiða tölvutækni sem gerir fötluðum börnum kleift að tjá sig og hafa áhrif á eigið hversdagslíf. Meðal tækjabúnaðar er þarna að finna tölvur sem eru augnstýrðar. Ótrúleg tækni sem hefur verið í þróun árum saman.
„Já, þetta er bylting fyrir nemendur sem geta ekki notað hendurnar. Við erum í samstarfi við fyrirtæki sem heitir Tobii Dynavox og notum sérstakt tjáskiptaforrit frá þeim. Þegar ég kynntist þessari tækni fyrst sá ég að þarna var möguleiki á að breyta lífi þessara barna og þá var bara eitt í stöðunni – að koma þessu á koppinn,“ segir Hanna Rún.
Við verðum endalaust að trúa á færni barnanna því ef við gerum það ekki, ná þau ekki árangri
Það er ekki ofsögum sagt að mikil vinna liggi að baki því að koma tjáskiptaforritinu í notkun en Hanna Rún hefur eytt ómældum tíma í að þýða og gera hugbúnaðinn þannig að hann henti íslenskum notendum. „Við vorum að nota forrit sem kallast Communicator 5 sem hafði ekki verið þýtt á íslensku. Það varð okkur til happs að fyrirtækið, Tobii Dynavox, var búið að þróa nýtt öflugt tjáskiptaforrit , TD Snap og vildi fá einhvern sem þekkti notendahópinn til að annast þýðinguna. Þau hefðu getað fengið óháðan aðila til að þýða en þeim var í mun að sjá hvernig forritið væri í notkun,“ segir Hanna Rún.
Tobii Dynavox er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu þegar kemur að augnstýrðum tölvum. „Það tekur á að læra að nota augun til að stjórna tölvu og það er eitt af því sem við þurfum að hafa í huga hér, nemendurnir þreytast fljótt til að byrja með og meta þarf hverju sinni hvenær þarf að taka pásu.“
Tækið fylgir augnhreyfingum og til þess að gera „enter“ þarf að fókusa í örstutta stund á viðkomandi stað. Það er erfiðara en það sýnist og kostar töluverða þjálfun.
Afþreying mikilvæg fyrir alla
Hanna Rún sýnir blaðamanni hvernig hægt er að velja sér lag á Spotify með því að nota augun eða ýta á myndir, og segjast til dæmis vera svangur.
„Það eru ekki mörg börn að nota þessa augnstýrðu tækni, mun fleiri börn nota snertiskjátækni. En fyrir þau sem geta ekki notað hendurnar er þetta alveg stórkostlegt. Einn af mínum nemendum ljómaði heldur betur þegar honum varð ljóst að hann gat stjórnað tölvunni með augunum en fram að því hafði hann enga leið til að tjá sig. Það var magnað augnablik fyrir þennan nemanda og breytti öllu í lífinu fram undan.“
Það er einmitt trúin á færni sem skiptir svo miklu, segir Hanna Rún. „Við verðum endalaust að trúa á færni barnanna því ef við gerum það ekki, ná þau ekki árangri. Ef ég trúi að barn geti lært að tala og nota þessa tækni í kennslunni þá síast það smám saman inn. Barnið áttar sig á endanum á því hvaða möguleikar fylgja þessu og þá verða oft til falleg augnablik. Það þarf ekki alltaf stóra sigra, hér eru oft tekin lítil skref sem eru samt rosaleg stór,“ segir Hanna Rún.
Lífsgæði barnanna eru líka fólgin í að geta valið sér afþreyingu. „Þessir nemendur sækja sér ekki púsl eða bók. En það eykur lífsgæði þeirra að geta notið afþreyingar, rétt eins og hjá okkur öllum. Það eru leikir í boði sem þau geta notið og svo eru samfélagsmiðlarnir Facebook, Youtube og Instagram aðgengilegir með einfaldara stýrikerfi sem nemendur geta notað. Þetta er frábær tækni og ekki síður fyrir fullorðið fólk sem er haldið taugasjúkdómum og er að missa færni til að nota lyklaborð.“
Ég ákvað snemma að ég vildi verða kennari og mjög fljótt vissi ég að ég vildi verða sérkennari
Hanna Rún kennir tvo daga í viku en hina dagana vinnur hún ráðgjafastörf, enda Klettaskóli ráðgjafarskóli sem þjónar öllu landinu. Hún nýtir líka tíma til að betrumbæta forritin sem krakkarnir nota í sínu námi.
„Mínar kennslustundir ganga mikið út á að þjálfa krakkana, spila við þau og fá þau til að tjá sig að eigin frumkvæði. Maður þarf að grípa þau og koma þeim í gang. Það skiptir gríðarlegu máli að þau geti notað tækin sín, hvort sem það er augnstýring eða snertiskjár, og þannig orðið sjálfstæð. Bara að þau geti í framtíðinni farið á veitingahús eða út í búð og sagt mig langar eða ég vil og síðast en ekki síst, tekið þátt í spjalli,“ segir Hanna Rún.
Bablið verður að setningum
Hún segir sjúkratryggingar styðja við kaup á tölvubúnaði sem gagnast nemendum til tjáskipta. „Það er gríðarlega mikilvægt að allir í umhverfi nemandans taki þátt í að innleiða þessa leið til tjáskipta. Ekki má gleyma því að þetta er tiltölulega ný tækni. Það eru að verða tvö ár síðan hugbúnaðurinn kom fyrst út á íslensku og þetta mun taka tíma. Það tekur börnin tíma að læra að mynda setningar, fyrst koma stök orð en smám saman bætist við og setningar taka að myndast. Þá má segja að við séum enn á babl-stiginu, með stökum orðum og stuttum setningum,“ segir Hanna Rún og brosir.
Hanna Rún hefur gert töluvert af því að fara um landið og kynna aðferðir til tjáskipta. Þetta hefur hún meðal annars gert í samstarfi við Öryggismiðstöðina sem flytur tölvubúnaðinn inn. Hún segir Klettaskóla hafa notið styrkja til tölvukaupa enda sé þetta dýr búnaður. „Öryggismiðstöðin og Góðvild hafa hjálpað okkur og svo gaf ónefnd lögfræðistofa okkur einnig tjáskiptatæki. Þetta er ómetanlegur stuðningur og vonandi tekst okkur að halda í við tæknina sem stöðugt fleytir áfram.“
Þakklát og glöð
Íslensku menntaverðlaunin féllu Hönnu Rún í skaut síðasta haust. Í tilnefningu sagði að Hanna Rún væri tilnefnd fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta. Hvernig var svo að fá verðlaunin?
„Ég er ótrúlega þakklát og glöð með þessa viðurkenningu. Maður gerir kannski ekki alltaf mikinn greinarmun á vinnu og einkalífi en hjá mér hefur þetta verkefni náð að innstu hjartarótum. Að einhver skyldi taka eftir þessu finnst mér merkilegt og auðvitað gleðilegt,“ segir Hanna Rún Eiríksdóttir.
Viðtalið birtist í Skólavörðunni 1. tbl. 2022
Myndir: Anton Brink