Litagleði og húsgögn á hjólum

Fréttir|4. desember 2019

Skarðshlíðarskóli er nýr og nútímalegur skóli í Hafnarfirði. Fjölbreytnin í húsgagnavali er einstök sem og litirnir sem prýða skólann.

Heið­gulur stigi og sólbjart and­dyri er það fyrsta sem ber fyrir augu þegar gengið er inn í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði. Skarðshlíðarskóli er nýr og nútímalegur skóli sem hóf göngu sína í safnaðarheimili Ástjarnarkirkju og er áttundi skólinn sem tekur til starfa í Hafnarfirði.

Skólavarðan heimsótti Skarðshlíðarskóla einn fallegan morgun í október til að fræðast um vinnuumhverfi kennara og nemenda og heyra aðeins af kennsluháttum.

„Þetta er annar veturinn okkar hér í þessu nýja húsi en skólinn hóf starfsemi í safnaðar­heimili Ástjarnarkirkju 2017. Það má segja að þar höfum við byrjað að pæla í hvernig vinnuumhverfi við vildum hafa hér; við höfðum góðan tíma til að melta og meta hlutina þennan fyrsta vetur. Eitt af því sem við gerðum í safnaðarheimilinu var að hafa öll húsgögn á hjólum og ástæðan fyrir því var praktísk. Við þurftum að tæma allt á föstudögum svo kirkjustarf gæti verið með eðlilegum hætti um helgar. Við vorum mjög ánægð með að hafa húsgögnin á hjólum og ákváðum að halda því þegar flutt var hingað,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla.

Ferlið við að búa til nýjan skóla er margþætt og spennandi að sögn Ingibjargar. Hún segist talskona þess að fá alla að borðinu og þess vegna boðaði hún alla foreldra á fund vorið 2017 – áður en skólinn flutti. „Ég vildi heyra hvaða hugmyndir foreldrar hefðu um skólann og hvernig þau sæju fyrir sér skólastarfið. Þetta voru opnar og góðar umræður og fram komu margar hugmyndir. Foreldrarnir settu fram margs konar gildi fyrir skólann og við fórum svo með þau fyrir starfsmannahópinn sem ræddi þau og bætti við öðrum gildum. Við völdum svo þau gildi sem komu oftast fyrir og fórum með þau fyrir alla árganga skólans. Krakkarnir völdu það sem þeim fannst skipta máli og að endingu fór þetta aftur fyrir kennarahópinn. Þar með vorum við búin að fara með málið í hring og út úr þessu komu gildi skólans sem eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Yfirgildið okkar er hins vegar gleði, en það sáum við sem nokkurs konar þráð hjá öllum hópunum,“ segir Ingibjörg og bætir við að þetta sé afar gott gildi.

„Það á að vera gaman að mæta til vinnu og það á að vera gaman í skólanum. Við viljum hafa starfsumhverfið þannig að öllum líði vel. Þetta gengur bara nokkuð vel og sjálf hlakka ég alltaf til að mæta í vinnuna.“

Hönnunin er úthugsuð

Það fer ekki fram hjá neinum sem heimsækir Skarðshlíðarskóla að hönnun skólans er úthugsuð og flott. Húsgögnin eru af margvíslegum toga og krakkarnir hafa frelsi til að koma sér þannig fyrir að þeim líði vel. Ingibjörg segir arkitekta skólans hafa unnið náið með starfsfólkinu og gerðar hafi verið ýmsar breytingar í ferlinu. Litapallettan er fjörleg en grunnlitir húsgagna eru ljós- og dökkgrár. Strax var ákveðið að bæta appelsínugulum lit inn þar sem yngsta stigið hefur aðsetur. Litur miðstigsins er límónugrænn og unglingastigsins fjólublár. Þannig mynda þrír litatónar heild á hverju svæði; ljósgrár, dökkgrár og litur stigsins.

„Svo eru fleiri litir í gangi; stiginn er heiðgulur og stórir gluggar eru grænir. Þetta vinnur allt saman og það er gott að ganga inn í bygginguna; maður skynjar gleði frá litunum sem við erum auðvitað afar ánægð með.“
Ingibjörg segist hafa afþakkað fastar inn­rétting­ar í kennslustofurnar; ekkert er veggfast heldur er allt á hjólum og því færanlegt. Þegar kom að því að velja húsgögn þá var það ekki arkitekt úti í bæ sem réði öllu heldur fengu nemendur að segja sína skoðun og taka þátt í að velja þau. Húsgögnin eru einmitt alls konar og sést það vel þegar gengið er um skólann; mjúkir boltastólar, dýnur, sófar, hringlótt borð, ferköntuð borð, há og lág borð, sæti í gluggum og svo framvegis.
Þegar kom að því að flytja starfsemina í nýja húsnæðið var dregin lína í Vallahverfið til að skipta á milli Hraunvallaskóla og Skarðshlíðarskóla.

Við viljum hafa starfs­umhverfið þannig að öllum líði vel. Þetta gengur bara nokkuð vel og sjálf hlakka ég alltaf til að mæta í vinnuna.

„Ég vildi ekki draga línu þegar kom að unglingunum enda tel ég ekki gott að neyða krakka á þeim aldri til að færa sig í annan skóla. Við héldum því nokkurs konar sölufund fyrir unglingana og ræddum þá kennsluhætti sem við ætlum að viðhafa og hvernig skóla við vildum byggja upp. Þetta varð til þess að þeir unglingar sem eru hjá okkur eru þeir sem vildu koma og fannst okkar stefna áhugaverð.“

Vitum ekki hvaða heimur bíður barnanna

Ingibjörg segist hafa skoðað Nú-skólann og Langholtsskóla til að leita fyrirmynda að kennsluháttum. Ingvar Sigurgeirsson, prófessor á Menntavísindasviði, hafi einnig komið að málum.

„Ég var strax ákveðin í að hér yrðu nútímalegir kennsluhættir og ekki bara kennt með gamla laginu. Við kennum eftir markmiðum og í gegnum þema. Þannig eru nemendur á unglingastigi í kraumtímum í 15 tíma á viku, en þar blöndum við saman samfélagsfræði, lífsleikni, tölvutækni, íslensku og fleiri greinum og tökum fyrir eitt þema í einu. Hvert þema getur tekið frá tveimur vikum og upp í sex. Með þessu móti ná krakkarnir að nýta styrkleika sína betur og hafa val um hvernig þau leysa verkefnin þegar kemur að formi og framsetningu. Við erum að prófa þetta í sjöunda og áttunda bekk og viljum gjarnan fara með þetta í neðri bekki þegar fram líða stundir.“

Ingibjörg segir skólastarf vera að taka breytingum enda sé það nauðsyn. „Við vitum ekki hvaða heimur bíður þessara barna en það er alveg á hreinu að hlutirnir verða ekki eins og við ólumst upp við. Við verðum að kenna börnum lýðræðisleg vinnubrögð og samvinnu og þau þurfa að vera fær í leita lausna á því sem kemur upp. Þau þurfa að þekkja leiðirnar að lausnum og um leið vera gagnrýnin.“

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.