Listin þroskar okkur svo mikið

Hanna Margrét Einarsdóttir kennir skapandi greinar við Víkurskóla í Reykjavík auk þess að kenna námskeiðið „leiðtogar í skapandi skólasamfélagi“ hjá Menntafléttunni og svo rekur hún fyrirtæki, MÓT, þar sem hún framleiðir listaverk - nytjahluti - úr leir. Hún segir að í starfi sínu hjá Víkurskóla sé hún fyrst og fremst að reyna að ná krökkunum inn í skapandi hugsun.
Hanna Margrét Einarsdóttir útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 1998 og er auk þess með meistarapróf í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Fyrir utan að hafa unnið sem kennari hefur hún meðal annars gegnt starfi kynningarstjóra Námsgagnastofnunar auk þess að hafa starfað sem verkefnastjóri hjá Listahátíð í Reykjavík og kynningarstjóri hjá alþjóðlegu tónlistarakademíunni í Hörpu og Reykholtshátíð í Borgarfirði.
„Svo fór ég að eiga börn og dreif mig loksins í hönnunarnám á háskólastigi við Myndlistaskólann í Reykjavík, sem mig hafði dreymt um lengi. Það var hönnunarnám sem kallast „keramikhönnun“ og ég er starfandi listamaður í keramiki í dag. Ég er í hlutastarfi sem kennari í skapandi greinum, list- og verkgreinum, í Víkurskóla auk þess að kenna námskeið hjá Menntafléttunni og svo er ég með eigin vinnustofu. Nýlega hóf ég einnig störf sem leiðbeinandi meistaraverkefna í listkennsludeild Listaháskóla Íslands.“
Víkurskóli er fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og er sérstök áhersla lögð á sköpun. „Við leggjum sérstaka áherslu á list- og verkgreinar; ég er til dæmis að kenna skapandi ferli og við erum líka meðal annars með margmiðlun, leiklist, textíl og myndmennt.
Ég er að reyna að ná til allra krakkanna og fyrst og fremst að reyna að ná þeim inn í skapandi hugsun. Við höfum til dæmis verið að vinna mikið með rýmispælingar, bæði innan og utan kennslustofunnar. Við höfum meðal annars unnið verkefni tengd frægum listamönnum, eins og Yayoi Kusama sem er ein frægasta listakona í dag; hún er á tíræðisaldri og er þekkt fyrir að vinna með doppur. Við skoðum innsetningar hennar og svo byrjum við á að setja verk krakkanna í rýmið; það eru doppur eftir krakkana víða í skólastofunni og víðar í skólanum.“
Hvað varðar umhverfið utan kennslustofunnar nefnir Hanna Margrét að nú séu nemendur 9. og 10. bekkjar að safna ýmsum gróðri og plöntum úr umhverfinu.
„Ég er að reyna að vekja þau til vitundar um að þau séu virkir þátttakendur í umhverfinu, hvort sem það er inni í stofunni eða fyrir utan hana; kannski beint fyrir utan stofuna eða kannski alla leið út í heim en í sambandi við það höfum við verið að vinna með Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Á þennan hátt er hægt að kortleggja umhverfi með því að skoða hvað er í því. Nú er að skapast fallegt verk sem sýnir þróunina í gróðrinum frá því skólinn byrjaði snemma í haust og þar til núna. Litirnir eru allt aðrir. Ég er alveg handviss um að þetta vekur þau til umhugsunar um umhverfi sitt.“
Geta öll verið skapandi
Hanna Margrét segir að hver hópur sé hjá sér í sex vikur. „Þetta eru lotur og ég legg áherslu á að það sé ferli í gangi eins og skapandi ferli hjá listamanni og þannig nýtist hönnunarnámið mér mjög mikið. Skólakerfið hefur kannski ráðist svolítið út frá því hvernig samfélagið hefur myndast. Skólakerfið er orðið mjög gamalt og var eiginlega þróað í kringum iðnbyltingarhugmyndir. Við erum alltaf á tímaklukku og krakkarnir eru dálítið uppteknir af því að klára verkefnin. Sköpun er ekki þannig og það finnst þeim stundum krefjandi og erfitt. Ég hef sagt þeim að þegar ég er að vinna á vinnustofunni minni þá virkar skapandi ferli þannig að ef ég er til dæmis að búa til skál þá er ég kannski ekki búin að ákveða hvernig hún verður þegar ég byrja á henni, svo sem hvernig hún verður á litinn eða hvernig glerung ég ætla að nota. Ef skálin kemur síðan vel út þá fæ ég nýja hugmynd að næstu skál. Ég er að reyna að kenna nemendunum að gefa sér tíma; það er bara svo mikill asi í umhverfinu. Í lífi okkar allra. Það er mikil truflun frá samfélagsmiðlum. Nemendunum finnst erfitt að setja símana sína niður og ég nota því oft hugleiðslu í byrjun tímans. Þeim fannst það mörgum skrýtið í byrjun, mjög fáránlegt, en núna eru þau mörg farin að biðja um hugleiðslu til að fá hvíld frá öllum asanum og þar á meðal símanum. Gefa sér tækifæri til að sitja og gera ekkert í nokkrar mínútur.
Það sem ég vil efla og ná fram með minni kennslu er að láta þau trúa að þau geti öll verið skapandi.
Það gleymist líka oft að huga að tilfinningalegri líðan nemenda. Það er ekki góð blanda að líða illa tilfinningalega og vinna skapandi. Slökun, tónlist og góð lykt eru allt þættir sem ég legg áherslu á að hafa í kennslustofunni. Ég er að vekja þau til umhugsunar, bæði með verkefnum, umræðum og slökuninni, um að vera bara svolítið einstaklingar inni í samfélagi og inni í rými. Allt sem við setjum frá okkur, hvort sem það er slæm eða góð hegðun eða falleg verkefni eða hugmyndir, hefur áhrif á umhverfið sem við erum inni í.
Það sem ég vil efla og ná fram með minni kennslu er að láta þau trúa að þau geti öll verið skapandi. Markmiðið hjá mér er að þau geti öll komið að verkefnunum; að þau taki þátt og reyni að leggja sitt af mörkum og reyni að fá hugflæðið af stað. Þau segja mörg að þau ætli ekkert að verða hönnuðir eða listamenn en það skiptir engu máli vegna þess að skapandi hugsun er talin vera mikilvægasti eiginleiki 21. aldarinnar, sama hvað viðkomandi gerir. Ég hef alveg stórkostlega trú á sköpun sem þátt í heilun; sem skapandi ferli. Það hefur svo góð áhrif á hugann og það hefur áhrif á tilfinningar okkar, tilfinningaþroskann og félagsþroskann, tengingar og hvernig við viljum takast á við vandamál sem geta komið upp, af því að við þurfum öll að takast á við hindranir í starfi okkar. Það er bara staðreynd. Þannig að það að hafa lært skapandi ferli og geta nýtt sér skapandi hugsun er gríðarlega mikilvægur hluti af því að vera manneskja á vinnumarkaði og vera til. Vera manneskja.“
Hanna Margrét segir að þeir kennarar Víkurskóla sem kenni list- og verkgreinar leggi talsvert upp úr samvinnu. „Nemendur fá skissubók þegar þeir byrja hjá okkur og við kennum þeim að nýta hana og skrifa niður í hana hugmyndir, þannig að þegar þeir fara frá mér og fara kannski í textíl þá geta þeir kannski nýtt þar eitthvað af þeim hugmyndum sem þeir fengu hjá mér og öfugt. Við erum alltaf að reyna að hugsa um að samþætta og dýpka kennsluhættina; að nemendur séu að vinna á ólíkan hátt úr kannski sömu hugmyndinni. Mér finnst það mjög spennandi ferli.“
Virðisaukning nemandans
Hanna Margrét kennir námskeiðið „Leiðtogar í skapandi skólasamfélagi“ hjá Menntafléttunni.
„Ég var beðin að taka þátt í að kenna það námskeið og er að kenna þar með frábæru fólki, þeim Rósu Gunnarsdóttur og Ingimar Waage Ólafssyni. Mér finnst það hafa verið ótrúlega gefandi að taka þátt í þessu. Við erum að reyna að efla kennarann sem skapandi leiðtoga í skólanum og að fá fólk til að gera svolítið það sama og ég er að fá nemendur Víkurskóla til að gera; að skoða sig sem kennara og skoða umhverfið sem viðkomandi starfar í. Hvar er skólinn staðsettur? Hvernig eru möguleikarnir á því að vera skapandi? Hvað er í umhverfi skólans? Við erum til dæmis núna að vinna með kennurum að því að skoða hvað það er í umhverfi skólans sem þeir geta notað til að efla verkefni sín, svo sem hvort einhver fyrirtæki eru í grenndinni sem geti dýpkað eða stækkað verkefnin með þeim.
Það sem skiptir líka miklu máli varðandi sköpunina er að skólakerfið er mjög einkunnamiðað og við hjá Menntafléttunni ræddum nýlega um hvað það er sem situr eftir þegar komið er úr skólakerfinu. Ég sagði að þegar ég var í frönsku í menntaskóla þá var það sem sat eftir það að ég hafði lært að elda franskan mat. Það jók áhuga minn á Frakklandi og dýpkaði áhuga minn á tungumálinu og franskri tónlist. Það er þessi virðisaukning nemandans sem verður í skapandi greinum og skapandi námi; aukið sjálfstraust og aukin víðsýni. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að fá tækifæri til að taka þátt í því og það er svo mikilvægt að fólk geti komið saman og átt faglegt samtal. Það er gríðarlega mikilvægt og verðmætt. Það styrkir mann að öllu leyti.“
Listin er svo göfgandi
Vinnustofa Hönnu Margrétar er töfraheimur þar sem allt getur gerst. Fyrirtækið hennar heitir MÓT (leitarorð mothonnun á Facebook og Instagram). „Ég nota mikið mót þegar ég er að gera hlutina mína. Fyrirtækið heitir í rauninni eftir börnunum mínum en ég á þrjú börn: Margréti Birtu, Ólaf og Teit. MÓT eru upphafsstafir þeirra, meira að segja í réttri aldursröð.
Ég er að gera alls kyns hluti; ég er mest að vinna diska, skálar, glös, vasa og aðra nytjahluti. Vinnustaðurinn minn er griðastaður, staðurinn þar sem ég næ að heila mig og orkan mín kemur mikið þaðan. Vinnan mín þar hefur mikil áhrif á kennsluna og kennslan kannski á listaverkin.“
Fyrir utan leirlistaverkin, nytjahlutina, hefur Hanna Margrét meðal annars verið að taka myndir og hefur hún haldið ljósmyndasýningar. „Ég var áhugaljósmyndari um tíma. Ég held að list og sköpun sé ekki eitthvað eitt heldur sé öll sköpun af sama meiði. Það að hlusta á tónlist eða elda mat vekur hugann upp í að hugsa aðeins út fyrir kassann og leyfa sér að prófa nýja hluti. Þá er til dæmis gott að hlusta á tónlist sem maður hefur aldrei hlustað á áður. Fólk er oft hrætt við orðið sköpun, að það sé verið að ætlast til svo mikils af því. En mín skoðun á því að vera skapandi er að vera alltaf með opinn huga, vera tilbúinn að prófa að breyta smá í einu, hlusta á aðeins öðruvísi tónlist, setja eitt nýtt krydd í uppskriftina eða taka út og þar fram eftir götunum. Ég hef alltaf tónlist á þegar ég er að vinna með krökkunum í Víkurskóla. Svo er ég svo heppin að það er píanó í kennnslustofunni af því að það er stundum kennd tónlist þar inni og ég er með nemendur sem eru að læra á píanó og finnst svo gaman þegar þau spila fyrir okkur. Listin er svo göfgandi. Hún þroskar okkur svo mikið. Þeir sem verða góðir listamenn eru þeir sem eru næmir fyrir umhverfi sínu og eru endalaust að skoða umhverfi sitt, horfa á fólk og landslag. Þannig að ég held að slíkt uppeldi sé mikilvægt til að að verða þroskaður og sterkur einstaklingur.“
Viðtalið við Hönnu Margréti birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2021