Listin að hlusta

Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla og frambjóðandi til varaformanns Kennarasambands Íslands, skrifar.
Ég hef frá því að ég man eftir mér alltaf haft mikinn áhuga á fólki og mannlegum samskiptum. Sem krakki var ég alltaf í sveit og var staðráðin í því að verða dýralæknir. Mér fundust beljurnar í fjósinu sérstaklega notalegar og átti ég oft í miklum samræðum við þær, sérstaklega ef mér leið illa og var með heimþrá.
Seinna þá lærði ég hársnyrtiiðn og komst að því að sem hársnyrtir þá þarftu að vera hálfgerður sálfræðingur varðandi það hvort viðskiptavinurinn vildi spjalla eða ekki. Þú þarft einnig að vera góður hlustandi og hlusta eftir því hvað viðskiptavinurinn vill og oft þarf hann að létta á hjarta sínu og þá er kostur að geta hlustað.
Áður en ég gerðist kennari var ég tvö ár stuðningsfulltrúi vestur í Stykkishólmi sem var bæði skemmtileg og frábær reynsla fyrir mig sem hefur nýst þegar ég hef haft börn á einhverfurófinu í bekknum mínum. Samhliða því starfi vann ég á dvalarheimilinu og tvö sumur þar að auki. Mér fannst sérstaklega gaman að vinna með gamla fólkinu og sérstaklega þegar það sagði frá því hvernig lífið hafði verið áður fyrr.
Frá því að ég byrjaði að kenna fyrir 21 ári síðan hafa miklar breytingar átt sér stað. Starf kennarans hefur breyst mjög mikið og er starfið í dag ekki eingöngu bundið við að fræða. Nú er starfið orðið töluvert flóknara og erum við að sinna mörgum nemendum með margvíslegan vanda alla daga í skóla fyrir alla. En er ekki til of mikils mælst að ætlast til að kennari sinni stórum hóp nemenda með mismunandi þarfir?
Það sem okkur vantar í skólunum eru bjargir og fleira fagmenntað fólk á gólfið sem hefur annars konar menntun heldur en kennarinn og er ég þá að tala um fleiri sérkennara, þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga. Þetta er eitthvað sem við þurfum að huga betur að og reyna að ná því marki. Ég held að þetta sé hluti að þeim vanda sem kennarar eru að glíma við og getur leitt til kulnunar í starfi.
Það sem okkur vantar í skólunum eru bjargir og fleira fagmenntað fólk á gólfið sem hefur annars konar menntun heldur en kennarinn og er ég þá að tala um fleiri sérkennara, þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga.
Við þurfum að huga betur að erlendu nemendunum okkar og hjálpa þeim betur að ná tökum á íslenskri tungu. Það er ekki í lagi að setja þessi börn beint inn í bekk þar sem þau þurfa að sitja jafnvel án þess að skilja neitt og kennarinn getur ekki sinnt þeim sem skildi. Þau þurfa svo miklu meiri þjónustu.
Ég hef einnig áhyggjur af íslensku börnunum okkar sem kjósa frekar að tala ensku en íslensku og eru svo í vandræðum með sitt eigið tungumál.
Sem varaformaður Kennarasambands Íslands myndi ég vilja beita mér fyrir því að bæta vinnuumhverfi kennara og gera þannig starfið eftirsóknarverðara. Starfið þarf að vera sýnilegra og við þurfum að hafa rödd okkar alls staðar þar sem er verið að móta stefnur og strauma um allt sem kemur að menntamálum.
Við þurfum að efla samvinnu og samstarf við Menntamálastofnun þannig að hún og kennarastéttin vinni saman í takt við framkvæmd Aðalnámskrár.
Fái ég fæ brautargengi sem varaformaður þá ætla ég að hlusta, læra og vinna að þeim málefnum sem mér eru hugleikin og í góðri samvinnu með nýjum formanni.