Listafell er listagallerí í Fellaskóla

Fréttir|12. maí 2021

Listafell opnar nýjar leiðir fyrir sköpunargleðina

Í Fellaskóla í Reykjavík leit skemmtilegt verkefni dagsins ljós þegar listagallerí sem ber nafnið Listafell var opnað með viðhöfn þann 29. janúar sl. Á sýningunni sem nú er í gangi sýna nemendur í 5.-10. bekk verk sín úr skapandi smiðjum í skólanum. Með galleríinu opnast nýjar leiðir fyrir sköpunargleðina og hefur hugmyndin verið lengi í gerjun.

„Ég hef haft þessa hugmynd í vinnslu í langan tíma en hún náði fyrst flugi núna þegar ráðinn var inn deildarstjóri í sköpun og tónlist við skólann. Þá kom inn aðili, hún Inga Björg Stefánsdóttir deildarstjóri, sem hafði svigrúm til að móta verkefnið og framkvæma, en í kringum eitt gallerí eru ófá handtök,“ segir Greta Sigríður Guðmundsdóttir, myndmenntakennari við Fellaskóla.

„Galleríið er hugarfóstur og samstarfsverkefni list- og verkgreinakennara; í textíl, hönnun og smíði, matreiðslu og myndmennt, og það er virkilega ánægjulegt að sjá hvað nemendur hafa tekið þessu vel. Við teygðum okkur niður á miðstigið og lotum nemenda lýkur með því að verk þeirra eru sýnd í galleríinu. Viðtökur hafa verið virkilega góðar og jákvæðar og nemendum finnst spennandi að sjá verkin sín uppi á vegg eða stillt upp.“

„Þegar við opnuðum fyrstu sýninguna þá var þetta alvöru – ávörp, formleg opnun, borði og veitingar sem nemendur í matreiðslu sáu um. Það er ánægjulegt hvað list- og verkgreinar fá aukinn sýnileika í skólastarfinu með þessu verkefni og Listafell er komið til að vera,“ segir Greta Sigríður.

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, vorið 2021