Linda Björk er nýr framkvæmdastjóri Orlofssjóðs
Fréttir|18. október 2022

Linda Björk Pálsdóttir tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands.
Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Orlofssjóðs KÍ. Linda mun hafa umsjón með starfi sjóðsins og eignasafni hans. Hún mun starfa eftir samþykktum stjórnar að frekari fjárfestingum, eflingu afþreyingar í orlofsbyggðum og þróun á afsláttarkjörum fyrir félaga KÍ.
Linda hóf störf hjá KÍ fyrr í þessum mánuði. Hún á að baki langan feril í ferðaþjónustu, var síðast framkvæmdastjóri Vesturferða á Ísafirði en starfaði þar á undan sem verkefnastjóri hvataferða hjá Iceland Travel og Nordic Visitor.
Linda er boðin hjartanlega velkomin til starfa hjá Kennarasambandinu.