Lífið á tímum COVID-19

Fréttir|19. júní 2020

Samanburður á viðbrögðum Norðurlandanna við kórónuveirufaraldrinum út frá vinnuumhverfi kennara.

Samráðsvettvangur vinnuumhverfissérfræðinga kennarasamtaka á Norðurlöndunum, Nordisk arbejdsmiljö nämnden eða NAN, hittist árlega á samráðsfundum, fjallar um það sem efst er á baugi í hverju landi og kynnir nýjungar. Hinn 8. og 9. júní síðastliðinn átti slíkur fundur að fara fram hér á Íslandi en vegna kófsins var fundinum breytt snarlega í fjarfund. Þátttakendur voru frá öllum Norðurlöndunum að Færeyjum og Grænlandi meðtöldum. Efni fundarins var tilraunir landanna við að hefta útbreiðslu COVID-19, hvernig skólastarfi var háttað og hvaða hugsanlegar breytingar væru í sjónmáli í kjölfarið. Í ljós kom að fundarfólk hafði ríka þörf fyrir að ræða ástandið og segja frá viðbrögðum síns lands. Annar fjarfundur verður í október þar sem farið verður yfir stöðuna, líðan fólks og hvort viðbrögð hafi verið viðunandi. Vinnuumhverfisnefnd KÍ tók saman yfirlit yfir helstu viðbrögð landanna.

 

Viðbrögð

Viðbrögð landanna reyndust fremur svipuð en Íslendingar og Svíar skáru sig úr þar sem leik- og grunnskólum var ekki lokað en skýrum reglum um sóttvarnir fylgt. Reyndar létu sænsk stjórnvöld stjórnendum skóla eftir að taka ákvarðanir um lokanir og/eða fjarkennslu og var því allur gangur á hvað gert var þar. Enn fremur var landamærum þessara landa ekki lokað. Hreinlæti var aukið til muna og umgangspestum fækkaði. Líklega hefur handþvottur, spritt, fjarlægðarmörk og þrif á snertiflötum þar mjög mikið að segja. Hreinlæti skiptir höfuðmáli þegar heilsan er annars vegar og kalla kennarar nú eftir auknu hreinlæti í skólum.

Grænlendingar skáru sig aðeins úr. Þar var skólum lokað og fjarkennsla sett af stað á vegum sveitarfélaga. Fjarkennslan fór fram í spjaldtölvum þar sem grunnskólar eru víða búnir þeim. Í þremur sveitarfélögum eru skólar ekki með spjaldtölvur svo þar þurfti að finna aðrar leiðir. Netaðgang er ekki að finna á hverju heimili svo brugðið var á það ráð að hafa útprentuð gögn og verkefni sem mátti nálgast í skólanum í samráði við kennara. Nemendur skiluðu svo verkefnum aftur til kennara að þeim loknum.

Danir hafa þegar sent út kannanir eftir að skólar opnuðu aftur og voru niðurstöður mjög í takt við það sem búast mátti við. Um 50% kennara óttuðust að smita aðra eða smitast og um 60% voru ánægð með skipulagið og hvernig til tókst við kennsluna. Í ljós kom að um leið og fækkað var í námshópunum fór að bera meira á hæglátu börnunum í kennslustundum. Þetta er það sama og leikskólakennarar hér á landi hafa haft á orði, um leið og börnum fækkaði í rými byrjuðu mörg þeirra hlédrægu að láta að sér kveða. Staldra ætti við þessa staðreynd í skólakerfi þar sem áherslan er á að hver og einn nemandi nái að blómstra. Enn fremur upplifðu mjög margir kennarar aukið álag í starfi þar sem breytingar voru gríðarlegar á skömmum tíma. Hér á landi er verið að að vinna að rannsóknum á þessum tíma og verða vonandi einhverjar niðurstöður ljósar í október þegar næsti fundur vinnuumhverfissérfræðinga verður.

 

Hér

Kennarasamtök nokkurra landa létu ekki sitt eftir liggja og sendu reglulega fréttabréf til sinna félagsmanna. Kennarasamband Íslands var þar engin undantekning og sendi félagsmönnum 16 Epli auk allra þeirra upplýsinga sem sendar voru frá aðildarfélögum. Stjórn Kennarasambandsins fundaði daglega kl. 9 og var í mjög miklu samstarfi við menntamálaráðherra og Almannavarnir. Kennarasambandið í samstarfi við menntamálaráðherra bauð kennurum upp á fjarsamtal við sálfræðing vegna þess álags sem skapaðist og nýttu kennarar sér það. Einnig lét KÍ gera myndbönd þar sem kennarar og stjórnendur töluðu um ástandið og þessar öru breytingar. Samhljóða álit var að eitthvað gott hlytist af þessu og draga mætti mikinn lærdóm af tímabilinu. Nú á dögunum kom svo í ljós að aðsókn í kennaranám hefur ekki verið meiri í mjög langan tíma og er það fagnaðarefni þar sem kennarastéttin eldist hratt og endurnýjunar er þörf.

Íslendingar eru sérstaklega stoltir af því hvernig stjórnmálamenn létu Almannavörnum eftir sviðið í þessu fári. Hvernig samráð var haft um viðbrögð og ákvarðanir teknar að því er virðist af yfirvegun og hvernig hlutverkum var skipt. Í flestum nágrannalöndum okkar voru stjórnmálamenn í forsvari en almannavarnir voru að störfum í bakgrunni.

Nú hefur lífið aftur færst í hefðbundnar skorður, bílaumferð hefur stóraukist í höfuðborginni aftur og virðist sem bílaeign höfuðborgarbúa hafi aukist, svo mikið er álagið á annatímum. Við erum farin að nálgast hvort annað og heilsast með handabandi þótt nú þyki almenn kurteisi að spyrja fyrst. Hjólhýsi hafa rokselst, allur viðlegubúnaður sem í boði er á netinu selst, hótelherbergi eru á tilboðum, ferðamannastaðir sýnilegir og -afþreying ekki yfirfull svo nú er komið að Íslendingum að klæða sig eftir veðri, ferðast innanlands og njóta náttúrunnar hér enda er hún engu lík sama hvernig viðrar.

 

Yfirlit yfir helstu viðbrögð nágrannalanda Íslands.