Líffræðikeppni framhaldsskólanna 2026

Fréttir|7. janúar 2026
Ibo

FYRSTA UMFERÐ Líffræðikeppni framhaldsskólanna 2026 Fer fram fimmtudaginn 05. febrúar 2026 Brennur þú af áhuga fyrir líffræði og skyldum greinum? Þá viljum við að þú (já, ÞÚ) mætir til leiks! Það gæti ekki verið einfaldara, því 1. umferð keppninnar fer fram í ÞÍNUM skóla! Tuttugu efstu keppendur úr fyrstu umferð komast áfram í úrslit. ÚRSLIT OG VERÐLAUNAAFHENDING VERÐA SVO 14. MARZ. Fjórum hlutskörpustu keppendunum verður boðið að keppa fyrir Íslands hönd í 37. Ólympíukeppninni í líffræði sem fram fer í Vilnius, Litháen 12. – 18. júlí. Nánari upplýsingar fást hjá líffræðikennurum skólans og/eða patrick@hi.is. Skoðið líka endilega Facebook síðu Landskeppninnar: https://www.facebook.com/landskeppniiliffraedi