Lífeyrissjóður skiptir um nafn og heitir nú Brú

Fréttir|24. júní 2016

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur skipt um nafn og mun eftirleiðis heita Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. Í tilefni nafnbreytingarinnar hefur verið hönnuð ný heimasíða og merki fyrir sjóðinn. 

Í frétt á vefsíðu Brúar segir að í kjölfar ítarlegrar stefnumótunarvinnu stjórnar og starfsmanna sjóðsins hafi verið ákveðið að finna nýtt og þjálla heiti fyrir sjóðinn um leið og vefsíðan yrði færð í nútímalegri búning. 

„Brú er lýsandi heiti fyrir lífeyrissjóð sem hefur það hlutverk að tryggja örugga afkomu og létta leiðina milli æviskeiða. Brúin í merkinu endurspeglar þessa tengingu æviskeiðanna, en litirnir lýsa lífsgleði og hinum fjölbreyttu verkefnum sem sjóðfélagar sinna í samfélaginu. Þá þótti Brú sérstaklega gott heiti fyrir sjóð sem er ætlaður starfsmönnum sveitarfélaga um allt land og minnir á þær fjölmörgu brýr sem tengja sveitarfélögin hvort sem átt er við samgöngur eða samstarf þeirra á milli," segir í frétt á vef Brúar. 

Ný vefsíða

Tekið er stórt skref í rafrænni þjónustu við sjóðfélaga með nýju vefsíðunni, www.lifbru.is, og markmið sjóðsins að hún verði í senn upplýsandi og þægileg í notkun. Sérstök umsóknargátt með öllum umsóknareyðublöðum er á vefsíðunni og þar geta sjóðfélagar jafnframt fylgst með framvindu mála. 

Sjóðafélagar eru eftir sem áður velkomnir á skrifstofu sjóðsins að Sigtúni 42 í Reykjavík og einnig má hafa samband í síma 540 0700 eða í gegnum tölvupóst; bru@lifbru.is.