Leyfisbréf kennara verða aðgengileg á Ísland.is

Nú þegar er hægt að sækja leyfisbréf gefin út eftir 1. janúar 2020
Nú er unnið að því að einstaklingar geti nálgast upplýsingar um starfsleyfi sín á vefnum Ísland.is og munu kennarar ríða á vaðið í þeim efnum. Leyfisbréf kennara verða aðgengileg í gegnum Ísland.is og í fyrsta fasa verkefnisins eru þegar aðgengileg útgefin leyfisbréf frá 1. janúar 2020.
Leyfisbréf sem gefin voru út fyrir 1. janúar 2020 munu bætast í gagnagrunninn á næstu misserum. Menntamálastofnun annast útgáfu leyfisbréfa til kennara og veitir nánari upplýsingar um þau.
„Þetta er frábært skref sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn. Við gleðjumst yfir því að kennarar verði þeir fyrstu sem geta nýtt sér þessa mikilvægu þjónustu og nálgast leyfisbréf sín á öruggan og milliliðalausan hátt á Ísland.is," segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í tilkynningu menntamálaráðuneytisins.
Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastóri Stafræns Íslands, segir samstarfið við Menntamálastofnun hafa verið gott. „Vefurinn Ísland.is er í örri þróun og sífellt fleiri þjónustuþættir að bætast við – við hvetjum alla til þess að fylgjast vel með og nýta sér vefinn. Starfsleyfi fleiri fagstétta eru í vinnslu og er meðal annars ráðgert að starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks bætist við á vefinn í sumar.“
„Við hjá Menntamálastofnun fögnum þessum áfanga í bættri þjónustu við kennara. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur skipt sköpum fyrir okkur í að hrinda verkefnum sem þessum í framkvæmd. Vonandi er þetta aðeins fyrsta skrefið af mörgum í þróun stafrænna þjónustu í þágu menntunar," segir Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálstofnunar í tilkynningu menntamálaráðuneytis.
Vinna við gerð gagnagrunnsins hófst vorið 2020. Verkefnið er unnið í samstarfi Menntamálastofnunar, Stafræns Íslands og háskólanna.