Leikurinn á lóðinni

Fréttir|23. apríl 2021

Harpa Kolbeinsdóttir deildarstjóri í leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði flutti erindi á aðalfundi Faghópsins 20. apríl 2021. Hún fjallaði um það hvernig starfsfólk leikskóla getur stuðlað að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóð. Skólaárið 2019-2020 vann allt starfsfólk leikskólans að starfendarannsókn þar sem markmiðið var að byggja ofan á, viðhalda og deila þekkingu á útinámi innan starfsmannahóps leikskólans. Einnig var markmiðið að nota skráningar á leik barna á útisvæði til þess að efla starfsmannahópinn í að bregðast við þörfum barnanna og stuðla að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóðinni.

Harpa Kolbeinsdóttir deildarstjóri í leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði flutti erindi á aðalfundi Faghópsins 19. apríl 2021. Hún fjallaði um það hvernig starfsfólk leikskóla getur stuðlað að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóð.

Skólaárið 2019-2020 vann allt starfsfólk leikskólans að starfendarannsókn þar sem markmiðið var að byggja ofan á, viðhalda og deila þekkingu á útinámi innan starfsmannahóps leikskólans. Einnig var markmiðið að nota skráningar á leik barna á útisvæði til þess að efla starfsmannahópinn í að bregðast við þörfum barnanna og stuðla að hvetjandi námsumhverfi á leikskólalóðinni.
Í rannsóknarferlinu safnaði starfsfólkið saman skráningum af leik barnanna á útisvæði leikskólans. Hluti starfsfólks hittist reglulega yfir tímabilið á sérstökum rannsóknarfundum til þess að ræða skráningarnar og næstu skref í ferlinu. Þegar komnar voru tæplega hundrað skráningar hjálpuðust starfsmenn að við að lesa yfir skráningarnar, flokka og greina. Einnig svöruðu þeir starfsmenn sem vildu og höfðu tekið virkan þátt í rannsóknarferlinu viðhorfskönnun. 

Helstu niðurstöður starfendarannsóknarinnar voru þær að verkefni af þessu tagi er áskorun fyrir starfsfólk sem er ekki vant vinnubrögðum sem fylgja starfendarannsóknum. Starfsfólk fann samt sem áður starfsánægju af því að takast á við krefjandi verkefni og gera það saman sem hópur. Í rannsóknarferlinu lærði starfsfólk að opna augun betur til að sjá hvað á sér stað í útiverunni. Starfsfólk fór að hlusta betur til að heyra í hvernig leikjum börnin voru og skráningarnar gerðu þeim kleift að lesa aftur og kafa dýpra ofan í leikinn á lóðinni. Starfsfólk lærði að samskipti barnanna eru margslungnari en virðist við fyrstu sýn, leikirnir flóknari og námstækifærin fleiri. Starfsfólk lærði heilmikið um hlutverk sitt á útisvæði og hvað samspil barna, fullorðinna og umhverfis skiptir miklu máli. Af þessari starfendarannsókn má sjá að það skilar miklu að gefa tíma í faglegar umræður um starfið í leikskólanum. Samtal og ígrundun starfsmannahópsins um starfshætti og nám barna stuðlar að sameiginlegri sýn á leikskólastarfið. Í þessari rannsókn kemur skýrt fram að leikurinn er aðalnámsleið leikskólabarna og rík ástæða til þess að standa vörð um leikinn. Sjá nánar hér.

Harpa gaf okkur líka upp margar og fjölbreyttar hugmyndir um það hvernig hægt er að auðga leik barna í útiverunni. Í Stekkjarási er tvisvar í mánuði settar upp svokallaðar stöðvar. Stöðvarnar eru mjög fjölbreyttar og má sjá hér samantekt 13 hugmynda sem allar hafa verið reyndar í leikskólanum. Sjá nánar hér.

Þeir sem hafa áhuga á að kafa enn dýpra eru hvattir til að lesa M.Ed. lokaverkefni Hörpu sem ber heitið:

„Það sprettur alltaf eitthvað meira, þú sáir einu fræi og ...“ Starfendarannsókn á útisvæði leikskóla.