Leikskólinn í tölum

Fréttir|9. maí 2025

Síðastliðinn október 2024 birti Hagstofa Íslands tölur um leikskóla landsins. Viðmiðunartíminn var desember 2023. Í fyrsta sinn voru birtar tölur um starfsfólk leikskóla eftir bakgrunni. Hér er stutt samantekt á því sem fram kom.

VISSIR ÞÚ AÐ…

…Tæplega 7.000 manns starfa í leikskólum landsins, eða 6.963. Þar af sinntu 6.580 uppeldi og menntunarstörfum.

…Starfsfólki leikskóla fækkaði um 156 frá fyrra ári, eða um 2,2% og stöðugildum starfsmanna, sem voru 6.151, fækkaði um 2% milli ára. Á sama tímabili fækkaði leikskólabörnum um 145, eða 0,7%.

…Einn af hverjum fjórum sem starfa við uppeldi og menntun í leikskólum er með kennsluréttindi, eða 27%. Það er, 1.802 kennarar af þeim 6.580 starfsmönnum sem sinntu uppeldi og kennslu í leikskólum í desember 2023. Rúmlega þúsund starfsmenn til viðbótar höfðu lokið annarri uppeldismenntun, eða 1.038. Ófaglærðir voru 56,8% starfsfólks við uppeldi og menntun árið 2023.

…Um 33% starfsfólks við uppeldi og menntun í leikskólum árið 2023 var með grunnpróf á háskólastigi og 14% með meistaragráðu eða meiri menntun. Rúmur helmingur, eða 53% var með menntun á framhaldsskólastigi eða minni menntun, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

…Fimmtungur starfsfólks við uppeldi og menntun leikskólabarna voru innflytjendur árið 2023. Undanfarin ár hefur starfsfólki með erlendan bakgrunn fjölgað á leikskólum landsins. Árið 2023 fór hlutfall innflytjanda sem starfa í leikskólum úr 16% í 22%.

... Hlutfallið meðal kennara og þeirra sem starfa við uppeldi og menntun er 23%, þegar yfirmenn eru taldir með er hlutfallið 20%. Hæst er hlutfall innflytjenda meðal annars starfsfólks leikskóla, svo sem þeirra sem starfa við þrif eða í eldhúsi, eða 53%.

…Rúmlega fjórðungur starfsfólks árið 2022 var ekki starfandi ári síðar. Brottfall úr starfi jókst milli ára og 25,9% starfsmanna við uppeldi og menntun í desember 2022 voru ekki við störf á leikskólum í desember 2023, eða rúmlega fjórðungur.

...Meðal kennara hækkaði brottfallið úr 11% í 12% á milli ára. Brottfall á meðal starfsfólks við uppeldi og menntun var mest á meðal ófaglærðra starfsmanna en um þriðjungur þeirra sem var við störf í desember 2022 var ekki starfandi í leikskóla ári síðar.