Leikskólinn Fífuborg 30 ára

Fréttir|24. mars 2023

Í dag var opið hús í leikskólanum Fífuborg í telefni af 30 ára afmæli leikskólans. Við litum við í Fífuborg, nutum góðra veitninga og kynntum okkur starfið. Fífuborg tók til starfa 18. janúar 1993, en vegna endurbóta á húsnæðinu var ekki hægt að halda upp á stórafmælið þá. Endurbæturnar tókust afar vel og er Fífuborg fallegur leikskóli þar sem bæði börnum og starfsfólki líður vel. Það er mikill stöðuleiki í starfsmannahaldi leikskólans og hlutfall leikskólakennara mjög gott. Einkunnarorð Fífuborgar eru virðing, heilbrigði og gleði. Sjá meira......

Í dag var opið hús í leikskólanum Fífuborg í telefni af 30 ára afmæli leikskólans. Við litum við í Fífuborg, nutum góðra veitninga og kynntum okkur starfið. 

Fífuborg tók til starfa 18. janúar 1993, en vegna endurbóta á húsnæðinu var ekki hægt að halda upp á stórafmælið þá. Endurbæturnar tókust afar vel og er Fífuborg fallegur leikskóli þar sem bæði börnum og starfsfólki líður vel. Það er mikill stöðuleiki í starfsmannahaldi leikskólans og hlutfall leikskólakennara mjög gott. Einkunnarorð Fífuborgar eru virðing, heilbrigði og gleði.

Í Fífuborg er lögð mikil áhersla á leikinn. Leikurinn er kennslutæki leikskólans og á honum grundvallast allt starf skólans. Lagt er út frá því að börn læri best í gegnum leik og því skapaðar aðstæður þar sem barnið fær notið sín í leik og hafi greiðan aðgang að fjölbreyttum efnivið bæði innan sem utandyra. Leikurinn skiptir börn meginmáli á leikskólaárunum og það að eiga samskipti við önnur börn. Hann styrkir þau félagslega, eykur samvinnu þeirra á milli, æfir þau í málfærni og undirbýr þau fyrir lífið sjálft. Í hlutverkaleiknum vinna börn úr eigin reynslu og þar læra þau samkennd, vináttu og lýðræðisvitund þeirra mótast. Frjáls og sjálfsprottinn leikur er hið eðlilega tjáningarform barns. Af leik sprettur ný þekking, nýjar tilfinningar, nýjar athafnir og leikni. Í leik tjáir barnið tilfinningar sínar og fær útrás fyrir þær. Börnin læra að setja fram hugmyndir sínar en þurfa jafnframt að taka tillit til annarra.

Í dag var m.a. kynning á umhverfisstefnu leikskólans, en Fífuborg er handhafi Grænfánans og margskonar afrakstur þemavinnu sem unnið hefur verið að í hópastarfi í vetur. Fífuborg hefur tekið þátt í margskonar erlendu samstarfi og í vetur var nemi hjá þeim frá þýskalandi sem lagði til þemað um úlfa. Sjá má á afrakstri hópastarfsins frábær listaverk eftir börnin. Yngri deildirnar voru að vinna að þemanu fjölskyldan mín. Það er afar áhugavert að sjá hvernig könnunaraðferðin er nýtt í hópastarfinu. Gaman að sjá hvernig þekkingin varð til smá saman hjá börnunum. 

Síðan en ekki síst þá má sjá merki þess að í Fífuborg er öflug listasmiðja. Listasmiðja sem svo sannarlega er rými fyrir sköpunarferli og fagurfræðilega tjáningu. 

Við tókum margar myndir sem segja fleira en mörg orð. Sjá hér.

Aftur til hamingju með 30 ára afmælið kæra leikskólasamfélag í Fífuborg.