Leikskólinn er menntastofnun samkvæmt lögum

Fréttir|1. apríl 2022

Haraldur Freyr Gíslason hefur gegnt formennsku í Félagi leikskólakennara í bráðum ellefu ár. Það er alltaf mikið um að vera hjá Félagi leikskólakennara, dagur leikskólans er nýliðinn og svo eru kjaraviðræður í fullum gangi, en kjarasamningur félagsins var laus um áramótin.

Ritstjórar Skólavörðunnar settust niður með Haraldi á dögunum. Fyrsta spurningin var um manneklu í leikskólum og þá staðreynd að afar illa gengur að uppfylla markmið laga sem kveða á um að 2/3 starfsfólks leikskóla séu leikskólakennarar.

„Leikskólakennurum hefur fjölgað umtalsvert síðustu tvo áratugi. Það voru 926 leikskólakennarar við störf árið 1998, eða 29% mannafla í leikskólum. Árið 2019 var fjöldi leikskólakennara kominn í 1.585 og voru þá 26% starfsfólks leikskólanna. Ef starfsfólk með aðra háskólamenntun er talið með þá var sú tala 181 árið 1998 og 1.245 árið 2019. Á þessu árabili fjölgaði ófaglærðum úr 2.071 í 3.148. Á þessu sést að starfsfólki sem vinnur að uppeldi og menntun í leikskólum landsins fjölgaði úr þrjú þúsund í sex þúsund á árabilinu 1998 til 2019,“ segir Haraldur og bætir við að þrátt fyrir að leikskólakennurum hafi fjölgað til muna þá sé vöxtur leikskólastigsins mun hraðari.

„Við í Félagi leikskólakennara þreytumst ekki á að benda á að of hraður vöxtur leikskólastigsins er meginorsök þess að ekki hefur tekist að fjölga leikskólakennurum hlutfallslega á þessu tímabili. Við höfum ekki náð að halda í við þennan hraða vöxt. Sveitarfélögin þurfa að fara að taka þessi varnaðarorð alvarlega,“ segir Haraldur.

Ein stærsta ástæða þess að leikskólastigið hefur vaxið til muna á umliðnum árum er að leikskólarnir taka við æ yngri börnum. Haraldur hefur oft bent á það opinberlega að taka þurfi almenna umræðu um þennan þátt leikskólastarfsins. „Tölurnar sýna svo ekki verður um villst að leikskólarnir eru ekki í stakk búnir fyrir þessa viðbót. Leikskólastigið þróast hratt sem skólastig og í raun alltof hratt til að geta staðið almennilega undir sér. Ákvarðanir sveitarfélaganna um að taka inn sífellt yngri og yngri börn, án þess að málið sé hugsað til enda, hefur komið okkur öllum í erfiða stöðu. Þessi hraði ofvöxtur umfram efni og gæði er því miður í boði allra sveitarfélaga landsins.“


Hægt að fjölga nemendum í leikskólafræðum enn frekar

Nemendum í leikskólafræðum á Menntavísindasviði HÍ og við Háskólann á Akureyri hefur fjölgað undanfarin misseri. Ráðist hefur verið í ýmsar aðgerðir til að laða fólk í námið. Staðreyndin er sú að fjölga þarf þessum nemendum enn frekar. Hvað telur Haraldur vera til ráða?

„Sveitarfélögin gætu með mun markvissari hætti „fjárfest“ í ófaglærðum einstaklingum eða einstaklingum með aðra háskólamenntun sem hefðu möguleika á að verða góðir kennarar. Ef leikskólastjóri metur það til dæmis svo að starfsmaður sé efnilegur eftir þriggja mánaða reynslutíma þá væri hægt að setjast niður og gera áætlun til 2 til 5 ára með viðkomandi. Starfsmaðurinn fengi kynningu á því hvernig tekjur og starfskjör muni breytast á tímabilinu og einnig hvaða styrkir og námsleiðir standi til boða. Ef þetta er gert markvisst og sjónrænt þannig að starfsmaðurinn upplifi að verið sé að fjárfesta í honum og hann sjái svart á hvítu að launakjörin muni batna þá erum við í stjórn FL sannfærð um við gætum fjölgað nemendum í leikskólafræðum til mikilla muna – og það myndi bætast við þá góðu fjölgun sem þó hefur orðið á síðustu árum.“

Það má segja að leikskólinn sé í framkvæmd skylduverkefni sveitarfélaga, á þeirri forsendu að það myndi enginn vilja búa í sveitarfélagi þar sem ekki væri leikskóli.

Haraldur segir sjálfgefið að laun, starfskjör og starfsumhverfi séu stórir þætti þegar kemur að vali á starfsvettvangi. „Við höfum ásamt samningsaðilum okkar unnið markvisst í þessum málum síðustu tíu árin. Það er staðreynd að hrein kaupmáttaraukning nýútskrifaðs leikskólakennara hefur verið um 70% undanfarinn áratug. Laun leikskólakennara og grunnskólakennara hafa verið þau sömu upp á krónu síðan árið 2014 og raðast með sama hætti þegar kemur að starfsaldri og menntun,“ segir Haraldur.

Hann segir starfsaðstæður leikskólakennara hafa batnað með fjölgun undirbúningstíma og skýrari ramma í þeim efnum. Stytting vinnuvikunnar er annar þáttur í að bæta starfsaðstæður, en þar er að sögn Haraldar talsvert óunnið verk.

„Heilt yfir hefur reynslan af styttingu vinnuvikunnar ekki verið nægilega góð. Samhliða því að gerð er tilraun til að stytta vinnuvikuna þá hefur kerfið vaxið það hratt að við sjáum ekki til lands. Það er nauðsynlegt að halda aftur af stækkun leikskólastigsins ásamt því að halda áfram að hækka laun og bæta starfsaðstæður – því það sem þegar hefur verið gert til að fjölga leikskólakennurum er hlutfallslega alltof lítið miðað við fjölgun barna í leikskólum.“


Flæðið þarf að vera í báðar áttir

Nú eru nær þrjú ár liðin síðan lög um eitt leyfisbréf kennara tóku gildi. Haraldur segir markmið laganna hafa verið gott, svo sem að auka flæði milli skólastiga. „Flæðið má þó aldrei vera einungis frá einu skólastigi til annars. Við sjáum að á tímabilinu 2018 til 2020 fóru 298 félagsmenn FL yfir í grunnskólann en á sama tíma færðu aðeins 97 félagsmenn í FG sig yfir í kennslu í leikskólum. Munurinn á umræddu tímabili er því 201 félagsmaður FL í óhag,“ segir Haraldur.

„Félag leikskólakennara batt vonir við að skýrari rammi um undirbúningstíma og stytting vinnuvikunnar, ef vel tækist til, myndu gera starfsaðstæður jafnari á milli skólastiga og um leið auka fagleg gæði leikskólastarfsins, börnunum til heilla. Þá vonuðum við að þessar breytingar í kjarasamningi myndu hafa það í för með sér að flæðið milli skólastiga yrði jafnara og í báðar áttir. Tölur um flæði á milli félaga eftir að nýr kjarasamningur var kominn í fulla virkni benda til þess að við séum á réttri leið. Það eru jákvæðar fréttir og gott veganesti að byggja á. Hins vegar þarf lengri tíma til að vita hvort þessar tvær annir séu tilfallandi eða flæðið haldi áfram að verða jafnara. Allir hagaðilar þurfa því að vera á tánum og leggjast á árarnar til að svo verði,“ segir Haraldur.

Haraldur nefndi fyrr í viðtalinu að stytting vinnuvikunnar hefði ekki gengið eins vel og vonast var til. „Eins og ég kom að áðan þá hefur stytting vinnuvikunnar reynst leikskólum flóknari og erfiðari í framkvæmd en almennt gerist á öðrum vinnustöðum sveitarfélaga. Leikskólastigið er mjög viðkvæmt þegar kemur að mönnun og að því leyti er það líkara vaktavinnustöðum en dagvinnustöðum. Mikilvægt er að við þessu verði brugðist með skýrum og markvissum hætti,“ segir Haraldur og bætir við að þegar horft sé á hækkun á hlutfalli dvalartíma barna af vinnutíma per starfsmann, samhliða betri vinnutíma, geti það gefið vísbendingu um óhóflegt álag á starfsfólk.

Til að koma í veg fyrir að aukning verði á á hlutfalli dvalartíma barna af vinnutíma starfsfólks mætti t.d, stytta daglegan meðaldvalartíma barna, fækka árlegum skóladögum starfsfólks í leikskólum eða fjölga stöðugildum.


Skyldur leikskólans eru skýrar

Þær raddir heyrast oft úr atvinnulífinu að leikskólinn sé þjónustustofnun og eigi að starfa samkvæmt þörfum vinnumarkaðarins. Hvað finnst leikskólakennurum um þennan málflutning?

„Þessu er auðsvarað. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og starfar samkvæmt lögum. Hlutverk hans er, lögum samkvæmt, að tryggja börnum gæðamenntun, uppeldi og umönnun með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Leikskólinn þarf enn fremur að takast á við margvíslegar áskoranir til að standa undir hlutverki sínu og það er einfaldlega ekki rými til að sinna þessu svokallaða þjónustuhlutverki sem kröfur eru stundum uppi um – og sveitarfélög hafa hent á lofti í pólitískum tilgangi. Skyldur leikskólans eru skýrar og sveitarfélögin verða að taka þær alvarlega og búa svo um hnútana að leikskólinn geti sinnt hlutverki sínu sem menntastofnun,“ segir Haraldur.

Það er ekkert eðlilegt við það að sérfræðistörf í fræðslustarfsemi, það er segja kennarastörf, séu verr metin til launa en sérfræðistörf í fjármála- eða vátryggingastarfsemi.

Leikskólastigið á, að sögn Haraldar, að vera skylduverk­efni sveitarfélaga samkvæmt lögum. Það er löngu tímabært. „Það má segja að leikskólinn sé í framkvæmd skylduverkefni sveitarfélaga, á þeirri forsendu að það myndi enginn vilja búa í sveitarfélagi þar sem ekki væri leikskóli. Nær öll börn á aldrinum tveggja ára og fram að grunnskólaaldri sækja menntun í leikskóla. Kostnaður við rekstur leikskóla hvílir alfarið á hendi sveitarfélaganna en á sama tíma renna engar skilgreindar tekjur til reksturs leikskóla frá ríki til sveitarfélaga. Þessu þarf að breyta,“ segir Haraldur.

Sveitarfélögin eru vinnuveitandi langflestra leikskólakennara. Ef laun sérfræðinga hjá sveitarfélögum eru skoðuð kemur í ljós að sérfræðingar í fræðslustarfsemi, kennarar, eru lægst launaðir í þeim flokki. Hvernig verður þessu breytt?

„Það liggja mikil tækifæri fyrir kennarastéttina í heild í undirrituðu loforði um jöfnun launa milli markaða. Þessu á að vera lokið fyrir árið 2026 en ég tel að þetta verði ekki að veruleika nema með baráttu og samtakamætti kennara á öllum skólastigum. Kennarasambandið á að vera leiðandi í þessari baráttu – það er hagur allra aðildarfélaga KÍ að við vinnum öll saman að hagsmunum kennarastéttarinnar,“ segir Haraldur.

„Það er ekkert eðlilegt við það að sérfræðistörf í fræðslustarfsemi, það er að segja kennarastörf, séu verr metin til launa en sérfræðistörf í fjármála- eða vátryggingastarfsemi. Þetta er til marks um gamaldags og brenglað mat á verðmæti starfa. Við verðum að vinna markvisst að því að breyta þessu.“


Verkefnið tæklað af fagmennsku og æðruleysi

Það þarf víst ekki að segja neinum að COVID-19 hefur sett mark sitt á samfélagið allt síðustu tvö ár. Bjartari tímar eru vonandi í vændum en Haraldur er að síðustu spurður hvernig leikskólakennarar komi út úr þessum erfiðu tímum.

„Það er óumdeilt að þær miklu takmarkanir á skólastarfi sem faraldurinn hefur haft í för með sér hafa þrengt mjög að starfi leikskólanna og valdið álagi. Leikskólakennarar hafa hins vegar tæklað þetta verkefni af fagmennsku og æðruleysi, svo eftir hefur verið tekið. Oft hefur mikið reynt á og jafnvel keyrt um þverbak við að halda starfseminni gangandi,“ segir Haraldur.

Hann segir engum dyljast að leikskólakennarar hafi staðið í framlínunni frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst snemma árs 2020.

„Það hafa komið tímar þar sem okkur hafa ekki þótt rök yfirvalda er kemur að sóttvörnum í leikskólum halda vatni. Það fór ekki alltaf saman hljóð og mynd þegar markmiðið var að ná smitum í samfélaginu hratt og örugglega niður en gera á sama tíma kröfu um að leikskólarnir væru opnir. Í slíkri stöðu er eðlilegt að áleitnar spurningar vakni meðal okkar félagsfólks. Það á svo eftir að koma í ljós hver langtímaáhrifin verða af þessu COVID tímabili. Ég vona sannarlega að stéttinni takist að vinna vel úr þessu og hún komi enn sterkari til baka,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.

 

Viðtalið birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2022