Leikskólinn Aðalþing hlýtur Orðsporið 2022

Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið, hvatningarverðlaun leikskólans, í tengslum við þennan ánægjulega dag.
Leikskólinn Aðalþing í Kópavogi hlýtur Orðsporið 2022. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, og Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, afhentu Herði Svavarssyni leikskólastjóra viðurkenninguna síðastliðinn föstudag.
Leikskólinn fær Orðsporið fyrir framsækið skólastarf og metnað er kemur að starfsþróun og umbótastarfi. Aðalþing hefur ráðist í mörg þróunarverkefni enda stefna skólans að vera rannsóknarleikskóli í fararbroddi.
Aðalþing státar einnig af háu hlutfalli réttindakennara í starfsmannahópnum en réttindakennarar hafa undanfarin misseri verið á bilinu 50 til 60 prósent starfsmanna sem sinna uppeldi og menntun í leikskólanum. Meðalfjöldi réttindakennara við uppeldi og menntun í leikskólum landsins var 28 prósent árið 2020.
Í leikskólanum eru 120 börn á aldrinum eins til sex ára og starfsmenn eru 30 talsins. Leikskólastjóri er Hörður Svavarsson en eigendur Aðalþings eru dr. Guðrún Alda Harðardóttir og Sigurður Þór Salvarsson.
Við bjóðum góðan dag ...
Dagur leikskólans er 6. febrúar og ber hann upp á sunnudag þetta árið. Einkunnarorð dagsins hafa löngum verið: Við bjóðum góðan dag – alla daga! Leikskólafólk er hvatt til að halda upp á Dag leikskólans á morgun, mánudag.
Þetta er í níunda skipti sem Orðsporið er veitt í tengslum við Dag leikskólans. Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, skóla- og barnamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli.
Kennarasamband Íslands óskar stjórnendum, leikskólakennurum og starfsfólki Aðalþings til hamingju með viðurkenninguna.